1Jósef kastaði sér grátandi yfir föður sinn og kyssti hann.
2Síðan bauð hann læknunum, sem voru í þjónustu hans, að smyrja föður sinn og læknarnir smurðu Ísrael.
3Það tók fjörutíu daga því að svo langan tíma tekur smurningin. Egyptar syrgðu hann í sjötíu daga.
4Er sorgardagarnir voru liðnir kom Jósef að máli við hirðmenn faraós og mælti: „Hafi ég fundið náð í augum ykkar þá berið faraó þessi orð mín:
5Faðir minn tók eið af mér og sagði: Nú mun ég brátt deyja og þú skalt jarða mig í gröfinni sem ég gróf handa mér í Kanaanslandi. Leyfðu mér því að fara og jarða föður minn. Að því búnu skal ég koma aftur.“
6Faraó lét svara honum þannig: „Farðu og jarðaðu föður þinn eins og hann lét þig vinna eið að.“
7Jósef hélt þá af stað til að jarða föður sinn. Með honum fóru allir embættismenn faraós, öldungarnir við hirð hans og allir öldungar Egyptalands,
8öll fjölskylda Jósefs, bræður hans og fjölskylda föður hans. Þeir skildu aðeins börn sín, sauði og nautgripi eftir í Gósenlandi.
9Hann hafði með sér bæði vagna og riddara, mikið föruneyti.
10Er þeir komu til Góren-haatad, vestan við Jórdan, héldu þeir mikla og veglega sorgarhátíð og Jósef bauð að faðir hans skyldi harmaður í sjö daga.
11Þegar íbúar landsins, Kanaanítar, sáu sorgarhátíðina í Góren-haatad sögðu þeir: „Þarna halda Egyptar mikla sorgarhátíð.“ Þess vegna var staðurinn nefndur Abel Mísraím. En staðurinn er vestan við Jórdan.
12Þannig gerðu synir Jakobs það við föður sinn sem hann hafði fyrir þá lagt.
13Þeir fluttu hann til Kanaanslands og jörðuðu hann í helli Makpelalands, í hellinum sem Abraham hafði keypt ásamt akrinum fyrir grafreit af Efron Hetíta, gegnt Mamre.
14Er Jósef hafði jarðað föður sinn fór hann aftur til Egyptalands ásamt bræðrum sínum og öllum sem með honum höfðu farið að jarða föður hans.
Jósef hughreystir bræður sína15Eftir andlát föður síns hugsuðu bræður Jósefs: „Vera má að Jósef beri illan hug til okkar og endurgjaldi okkur allt hið illa sem við höfum gert honum.“
16Þess vegna sendu þeir Jósef eftirfarandi skilaboð: „Áður en faðir þinn dó bað hann
17okkur að segja við þig: Fyrirgefðu bræðrum þínum misgjörð þeirra og synd, það illa sem þeir gerðu þér. Þess vegna biðjum við þig að fyrirgefa þjónum þess Guðs, sem faðir þinn dýrkaði, þá synd sem við höfum drýgt.“ Við þessi orð þeirra brast Jósef í grát.
18Þá komu bræður hans sjálfir og féllu fram fyrir honum og sögðu: „Við erum þrælar þínir.“
19En Jósef sagði við þá: „Óttist ekki því að ekki kem ég í Guðs stað.
20Þið ætluðuð að gera mér illt en Guð sneri því til góðs. Hann vildi gera það sem nú er orðið og þannig varðveita líf margra manna.
21Verið því óhræddir, ég skal annast ykkur og börn ykkar.“ Síðan hughreysti hann þá og talaði vingjarnlega til þeirra.
Elli Jósefs og andlát22Jósef bjó í Egyptalandi ásamt ætt föður síns og varð hundrað og tíu ára.
23Jósef sá niðja Efraíms í þriðja lið og synir Makírs, sonar Manasse, fæddust á hné Jósefs.
24Jósef sagði við bræður sína: „Nú mun ég brátt deyja en Guð mun annast ykkur og flytja ykkur úr þessu landi til þess lands sem hann hefur heitið Abraham, Ísak og Jakobi.“
25Síðan tók hann eið af Ísraelssonum og mælti: „Guð mun vitja ykkar og þá skuluð þið flytja bein mín héðan.“
26Jósef var hundrað og tíu ára þegar hann dó og þeir smurðu hann og lögðu í kistu í Egyptalandi.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.