Fyrri Samúelsbók 31 - Biblían (2007)

Dauði Sáls og sona hans

1Filistear réðust nú á Ísrael og flýðu Ísraelsmenn undan þeim en margir lágu fallnir á Gilbóafjalli.

2Filistear þrengdu mjög að Sál og felldu Jónatan, Abínadab og Malkísúa, syni hans.

3Var nú gerð hörð atlaga að Sál. Nokkrar bogaskyttur höfðu komið auga á hann, hæft hann og var hann mikið særður.

4Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: „Dragðu sverð þitt úr slíðrum og rektu mig í gegn. Annars koma þeir óumskornu, reka mig í gegn og fara háðulega með mig.“ En skjaldsveinninn vildi ekki gera þetta því að hann var mjög hræddur. Þá tók Sál sverð sitt og lét fallast á það.

5Þegar skjaldsveinninn sá að Sál var látinn lét hann sig einnig falla á sverð sitt og dó með Sál.

6Þannig lét Sál lífið og synir hans þrír, skjaldsveinn hans og menn hans, allir saman á einum degi.

7Þegar þeir Ísraelsmenn, sem bjuggu handan við sléttuna og austan við Jórdan, gerðu sér grein fyrir að Ísraelsmenn voru flúnir og Sál og synir hans fallnir yfirgáfu þeir borgir sínar og flýðu. Síðan komu Filistear og settust að í þeim.

8Daginn eftir, þegar Filistear komu til að ræna valinn, fundu þeir Sál og syni hans þrjá fallna á Gilbóafjalli.

9Þeir hjuggu af honum höfuðið og rændu vopnum hans. Síðan sendu þeir menn um land Filistea til að tilkynna fólkinu sigurinn og kunngjöra hann í húsi guða sinna.

10Vopnum Sáls komu þeir fyrir í hofi Astarte en lík hans festu þeir á borgarmúrinn í Bet San.

11Þegar íbúarnir í Jabes í Gíleað fréttu hvernig Filistear höfðu farið með Sál

12héldu allir vopnfærir menn af stað og gengu alla nóttina. Þeir tóku síðan lík Sáls og sona hans niður af borgarmúrnum í Bet San og þegar þeir komu heim til Jabes brenndu þeir líkin þar.

13Því næst tóku þeir bein þeirra og grófu þau undir eikinni í Jabes og föstuðu í sjö daga.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help