Síraksbók 40 - Biblían (2007)

Örlög manna

1Mikið erfiði hefur Drottinn skapað öllum mönnum,

lagt þungt ok á Adams syni.

Frá þeim degi er þeir fæðast af móðurlífi

uns þeir hverfa aftur til móður allra

2eru uggur og kvíði í hjarta mannanna,

framtíðaráhyggjur til æviloka.

3Jafnt sá sem trónar í hásæti

sem hinn sem situr í sekk og ösku,

4svo og sá sem klæðist purpura og ber kórónu

og hinn sem skýlir sér með striga:

5Alla hrjáir reiði, öfund, áhyggja og órói,

ótti við dauðann, biturð og deilur.

Svo þegar lagst er til hvíldar að kvöldi

ruglar svefninn huga þess sem sefur.

6Vart merkjandi andrá nýtur hann hvíldar,

svo fylgja áhyggjur dagsins inn í svefninn.

Ámóta ógnir hrella huga hans

og þess er með naumindum slapp af vígvelli.

7Síðan vaknar hann þegar best gegnir

og undrast að ekkert er að óttast.

8Á allt sem lífsanda dregur, jafnt menn sem dýr,

en sjöfalt fremur syndarana,

9herja dauði og manndráp, styrjöld og sverð,

ógæfa, hungur, þrenging og þjáning.

10Vegna syndara var allt þetta skapað,

sakir þeirra varð flóðið.

11Allt, sem af jörðu er, hverfur aftur til jarðar

og það sem er af vatni hverfur aftur til hafsins.

Afleiðing hins illa

12Öll spilling og ranglæti mun afmáð verða

en heilindi halda velli um aldur.

13Rangfenginn auður líkist þornuðum læk

og dynjandi þrumu sem dvínar í regni.

14Sá sem er örlátur mun lifa í fögnuði

en þeir er brutu boðorðin munu afmáðir með öllu.

15Niðjar guðlausra bera fáar greinar

og veikar rætur þeirra standa á klettasnös.

16Sef, er sprettur við vötn og árbakka,

mun rifið upp á undan öllum öðrum gróðri

17en góðvild er eins og grasgarður í blóma

og miskunnarverk varir að eilífu.

Gleðigjafar manna

18Ljúft er að sitja að sínu og hafa vinnu

en að finna fjársjóð tekur hvoru tveggja fram.

19Nafn þess lifir sem eignast börn og reisir borg

en betra hvoru tveggja er dygðug kona.

20Vín og söngur gleðja hjartað

en ást á speki tekur hvoru tveggja fram.

21Flauta og harpa óma þýðlega

en hlýlegt orð ber af báðum.

22Þokki og fegurð hrífa augað

en nýgræðingur ber af báðum.

23Vinur og félagi hraða sér til hjálpar þegar við liggur

en kona við hlið manns síns er þeim betri.

24Bræður og hjálpsemi koma að liði í raun

en eigin góðverk munu fremur hjálpa þér.

25Gull og silfur eru góður grundvöllur

en dómgreind tekur hvoru tveggja fram.

26Auður og máttur vekja öryggiskennd

en betra er að óttast Drottin.

Þann sem óttast Drottin mun ekkert bresta,

eigi þarf hann hjálpar að leita.

27Ótti Drottins er sem grasgarður í blóma,

skýlir betur en nokkur jarðnesk vegsemd.

Varað við betli

28Barnið mitt, betla þú ekki,

betra er að deyja en betla.

29Maður sem mænir á annars borð

lifir eigi lífi sem svo megi kallast.

Biti af annars borði flekkar sálina,

hygginn maður og agaður varast það.

30Betlaður biti er blygðunarlausum sætur

en mun brenna sem eldur í maga hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help