Fyrsta Mósebók 45 - Biblían (2007)

Jósef segir til sín

1Nú gat Jósef ekki lengur haft stjórn á tilfinningum sínum frammi fyrir hirðmönnum sínum og skipaði þeim að fara út. Enginn þeirra var því inni hjá honum þegar hann sagði bræðrum sínum hver hann væri.

2Jósef brast í grát og grét svo hátt að Egyptar heyrðu það og fréttin barst um höll faraós.

3Jósef sagði við bræður sína: „Ég er Jósef. Er faðir minn enn á lífi?“ En bræður hans gátu ekki svarað honum, svo óttaslegnir voru þeir.

4Þá sagði Jósef við bræður sína: „Komið hingað til mín.“ Þeir gengu til hans og hann sagði: „Ég er Jósef, bróðir ykkar, sem þið selduð til Egyptalands.

5En verið ekki daprir og ásakið ykkur ekki fyrir að hafa selt mig hingað. Það var Guð sem sendi mig hingað á undan ykkur til að bjarga lífi.

6Nú hefur hungursneyð verið í landinu í tvö ár og enn munu koma fimm ár án þess að hægt verði að plægja eða uppskera.

7Guð hefur sent mig hingað á undan ykkur til þess að halda við kyni ykkar á jörðinni og tryggja ykkur fjölda niðja.

8Það voruð því ekki þið sem senduð mig hingað heldur Guð og hann hefur gert mig að fremsta ráðgjafa faraós, sett mig yfir allt hús hans og falið mér að stýra öllu Egyptalandi.

9Flýtið ykkur nú heim til föður míns og segið við hann: Svo segir Jósef sonur þinn: Guð hefur falið mér stjórn alls Egyptalands. Komdu til mín án tafar.

10Þú skalt búa í Gósenlandi, nærri mér, þú og synir þínir og sonasynir, sauðfé þitt og nautgripir og allt sem þitt er.

11Ég skal sjá þér farborða því að enn verður hungursneyð í fimm ár. Þú munt ekki líða skort, hvorki þú, fjölskylda þín né nokkuð sem þitt er.“

12Jósef hélt áfram: „Þið sjáið með eigin augum, bæði Benjamín bróðir minn og þið hinir, að það er ég sjálfur sem tala til ykkar.

13Segið föður mínum hversu valdamikill ég er í Egyptalandi og frá öllu sem þið hafið séð. Komið hingað með föður minn eins fljótt og ykkur er unnt.“

14Hann féll um háls Benjamín bróður sínum og grét og Benjamín faðmaði hann og grét.

15Hann kyssti alla bræður sína, faðmaði þá og grét. Eftir það töluðu bræður hans við hann.

Bræðurnir snúa aftur til föður síns

16Það hafði frést í höll faraós að bræður Jósefs væru komnir og glöddust faraó og hirðmenn hans yfir því.

17Faraó sagði við Jósef: „Segðu bræðrum þínum: Klyfjið burðardýr ykkar og haldið af stað til Kanaanslands.

18Sækið föður ykkar og fjölskyldur og komið til mín. Ég skal gefa ykkur það besta sem Egyptaland hefur upp á að bjóða og þið skuluð njóta gæða landsins.

19Segðu þeim einnig þetta: Takið vagna í Egyptalandi handa börnum ykkar og konum, sækið síðan föður ykkar og komið hingað.

20Hirðið ekki um eigur ykkar því að þið munuð eignast það besta sem Egyptaland hefur upp á að bjóða.“

21Synir Ísraels gerðu þetta og Jósef fékk þeim vagna og nesti til fararinnar eins og faraó hafði boðið.

22Hann gaf þeim öllum spariklæðnað en Benjamín gaf hann þrjú hundruð sikla silfurs og fimm spariklæðnaði.

23Hann sendi og föður sínum tíu asna klyfjaða hinum bestu afurðum Egyptalands og tíu ösnur klyfjaðar korni, brauði og öðru matarkyns handa föður sínum til ferðarinnar.

24Síðan kvaddi Jósef bræður sína og er þeir héldu af stað sagði hann við þá: „Deilið ekki á leiðinni.“

25Þeir fóru frá Egyptalandi og komu til Kanaanslands, heim til Jakobs, föður síns.

26Þeir færðu honum tíðindin og sögðu: „Jósef er enn á lífi og stýrir öllu Egyptalandi.“ En hjarta hans komst ekki við því að hann trúði þeim ekki.

27En er þeir skýrðu honum frá öllu sem Jósef hafði við þá talað og hann sá vagnana sem Jósef hafði sent til að flytja hann í, þá lifnaði yfir Jakobi, föður þeirra.

28„Mér nægir að Jósef, sonur minn, er enn á lífi,“ sagði Ísrael. „Ég vil fara og sjá hann áður en ég dey.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help