1Rúben var frumburður Ísraels. Hann var frumburðurinn. En þar sem hann hafði vanhelgað hvílu föður síns var frumburðarrétturinn gefinn sonum Jósefs, sonar Ísraels. Hann var þó ekki skráður sem frumburður í ættartölum
2því að Júda varð voldugastur bræðra sinna og afkomandi hans varð þjóðhöfðingi þó að Jósef hlyti frumburðarréttinn.
3Synir Rúbens, frumburðar Ísraels, voru Henok og Pallú, Hesrón og Karmí.
4Synir Jóels voru Semaja, sonur hans, Góg, sonur hans, Símeí, sonur hans,
5Míka, sonur hans, Reaja, sonur hans, Baal, sonur hans, og
6Beera, sonur hans, sem Tílgat Pilneser Assýríukonungur flutti í útlegð. Hann var höfðingi niðja Rúbens.
7Þegar bræður hans létu skrá sig í ættartölur eftir ættum sínum töldust þeir til fjölskyldu hans. Fyrstur þeirra var Jeíel, þá Sakaría
8og Bela Asasson, Semasonar, Jóelssonar.
Niðjar Rúbens bjuggu í Aróer og allt til Nebó og Baal Meon.
9Þeir bjuggu á svæði sem lá til austurs, allt að eyðimörkinni sem er vestur frá Efrat, því að þeir áttu miklar hjarðir í landi Gíleaðs.
10Á dögum Sáls áttu þeir í ófriði við Hagríta. Þegar þeir höfðu fallið þeim í hendur settust þeir að í tjöldum þeirra sem voru um allan austurhluta Gíleaðs.
Ættbálkur Gaðs11Synir Gaðs bjuggu andspænis þeim í Basanlandi, allt til Salka.
12Jóel var höfðinginn og Safam næstur honum, þá Jaenaí og Safat í Basan.
13Og bræður þeirra voru eftir fjölskyldum: Mikael og Mesúllam og Seba og Jóraí og Jaekan og Sía og Eber, alls sjö.
14Þeir voru synir Abíhaíls Húrísonar, Jaróasonar, Gíleaðssonar, Mikaelssonar, Jesísaísonar, Jahdósonar, Bússonar.
15Akí Abdíelsson, Gúnísonar var höfðingi fjölskyldna þeirra.
16Þeir bjuggu í Gíleað, í Basan og þorpunum umhverfis, og í öllum beitilöndum Sarons, svo langt sem þau náðu.
17Þeir voru allir skráðir í ættartölur á dögum Jótams Júdakonungs og á dögum Jeróbóams Ísraelskonungs.
18Þeir af sonum Rúbens og Gaðs og hálfum ættbálki Manasse, sem voru hermenn, báru skjöld og sverð og spenntu boga og voru þjálfaðir í hernaði. Þeir voru fjörutíu og fjögur þúsund sex hundruð og sjötíu vopnfærir menn.
19Þeir áttu í ófriði við Hagríta og Jetúr og Nafís og Nódab.
20Þeir hlutu hjálp og Hagrítar og allir bandamenn þeirra voru seldir þeim í hendur. Þar sem þeir höfðu hrópað til Guðs á hjálp á meðan bardaginn stóð bænheyrði hann þá af því að þeir treystu honum.
21Þeir tóku með sér hjarðir Hagríta sem herfang, fimmtíu þúsund úlfalda, tvö hundruð og fimmtíu þúsund sauðfjár og tvö þúsund asna. Einnig tóku þeir hundrað þúsund manns.
22Margir voru lagðir sverði og féllu því að bardaginn var háður að ráði Guðs. Synir Gaðs bjuggu síðan í landi þeirra allt til útlegðarinnar.
Ættbálkur Manasse austan Jórdanar23Synir hálfs ættbálks Manasse voru margir og bjuggu í landinu sem nær frá Basan til Baal Hermon og til Seír og Hermonfjalls.
24Þetta voru höfðingjar ætta þeirra: Efer og Jíseí og Elíel og Asríel og Jeremía og Hódavja og Jahdíel. Þeir voru miklir kappar og nafnkunnir menn, höfðingjar í ættum sínum.
25En þeir sviku Guð feðra sinna og tóku fram hjá með guðum þjóðanna sem bjuggu í landinu og Guð hafði rutt úr vegi fyrir þeim.
26Þá blés Guð Ísraels því í brjóst Púl Assýríukonungi, það er Tílgat Pilneser, að flytja niðja Rúbens, Gaðs og hálfan ættbálk Manasse í útlegð. Hann flutti þá til Hala og Habór og Hara og Gósanfljóts. Þar hafa þeir verið allt til þessa dags.
Ættbálkur Leví27Synir Leví voru Gersom, Kahat og Merarí.
28Og synir Kahats voru Amram, Jísehar og Hebron og Ússíel.
29Og börn Amrams voru Aron og Móse og Mirjam. Og synir Arons voru Nadab og Abíhú, Eleasar og Ítamar.
30Eleasar gat Pínehas, Pínehas gat Abísúa,
31Abísúa gat Búkkí og Búkkí gat Ússí
32og Ússí gat Serahja og Serahja gat Merajót
33og Merajót gat Amarja og Amarja gat Ahítúb
34og Ahítúb gat Sadók og Sadók gat Akímaas
35og Akímaas gat Asarja og Asarja gat Jóhanan
36og Jóhanan gat Asarja. Hann gegndi prestsþjónustu í musterinu sem Salómon reisti í Jerúsalem.
37Og Asarja gat Amarja og Amarja gat Ahítúb
38og Ahítúb gat Sadók og Sadók gat Sallúm
39og Sallúm gat Hilkía og Hilkía gat Asarja
40og Asarja gat Seraja og Seraja gat Jósadak.
41Og Jósadak fór í útlegð þegar Drottinn lét Nebúkadnesar flytja íbúana í Júda og Jerúsalem í útlegð.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.