Sálmarnir 38 - Biblían (2007)

1Davíðssálmur. Minningarljóð.

2Drottinn, refsa mér ekki í reiði þinni

og tyfta mig ekki í bræði þinni.

3Örvar þínar hafa hæft mig

og hönd þín liggur þungt á mér.

4Ekkert er heilbrigt í líkama mínum

vegna reiði þinnar,

ekkert heilt í beinum mínum

sakir syndar minnar.

5Misgjörðir mínar hafa vaxið mér yfir höfuð,

þær eru byrði sem ég fæ ekki borið.

6Ódaun leggur af sárum mínum,

það grefur í þeim sakir heimsku minnar.

7Ég er beygður og mjög bugaður,

eigra um harmandi daginn langan.

8Brunasviði er í lendum mér

og ekkert er heilbrigt í líkama mínum.

9Ég er lémagna og sundurkraminn,

styn í hjartans angist.

10Drottinn, öll mín þrá er þér kunn

og andvörp mín eru eigi hulin þér.

11Hjartað berst í brjósti mér, kraftur minn er þrotinn,

jafnvel ljós augna minna er horfið mér.

12Vinir mínir og kunningjar forðast mig í kröm minni

og mínir nánustu halda sig fjarri.

13Þeir sem sitja um líf mitt leggja snörur fyrir mig,

þeir sem vilja mér illt rægja mig

og sitja á svikráðum allan liðlangan daginn.

14En ég er sem daufur, ég heyri það ekki,

sem dumbur er opnar ekki munninn,

15ég er sem maður sem heyrir ekki

og engin andmæli hefur í munni.

16En á þig, Drottinn, vona ég,

þú munt svara mér, Drottinn, Guð minn.

17Ég segi: „Lát þá eigi hlakka yfir mér,

eigi hælast um þegar mér skriðnar fótur.“

18En ég er að falli kominn

og þjáning mín er mér sífellt fyrir augum.

19Ég játa misgjörð mína,

er sorgmæddur yfir synd minni.

20Þeir sem án saka eru óvinir mínir eru margir,

fjölmargir þeir sem hata mig að ástæðulausu.

21Þeir gjalda mér gott með illu,

fjandskapast við mig af því ég leita hins góða.

22Yfirgef mig ekki, Drottinn,

Guð minn, ver ekki fjarri mér.

23Skunda til liðs við mig,

Drottinn, þú hjálp mín.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help