Fyrsta Mósebók 46 - Biblían (2007)

Jakob fer til Egyptalands

1Ísrael lagði nú af stað með allt sitt og hann kom til Beerseba þar sem hann færði Guði Ísaks, föður síns, sláturfórn.

2Þá um nóttina talaði Guð við Ísrael í sýn og sagði: „Jakob, Jakob!“ Hann svaraði: „Hér er ég.“

3Guð sagði: „Ég er Guð, Guð föður þíns. Óttast þú ekki að fara til Egyptalands því að þar mun ég gera þig að mikilli þjóð.

4Ég mun sjálfur fylgja þér til Egyptalands og ég mun flytja þig þaðan aftur og Jósef mun veita þér nábjargirnar.“

5Síðan lagði Jakob af stað frá Beerseba og Ísraels synir fluttu Jakob, föður sinn, börn sín og konur á vögnunum sem faraó hafði sent til að flytja hann á.

6Þeir tóku fénað sinn og annað það sem þeir höfðu eignast í Kanaanslandi og komu til Egyptalands, Jakob og allir niðjar hans með honum.

7Hann flutti syni sína og sonasyni, dætur sínar og sonadætur og alla niðja sína með sér til Egyptalands.

Niðjatal Ísraels

8Þetta eru nöfn Ísraels sona sem komu til Egyptalands: Jakob og synir hans: Rúben, frumgetinn sonur Jakobs.

9Synir Rúbens voru Hanok, Pallú, Hesrón og Karmí.

10Synir Símeons voru Jemúel, Jamín, Óhad, Jakín, Sóar og Sál, sonur kanversku konunnar.

11Synir Leví voru Gerson, Kahat og Merarí.

12Synir Júda voru Ger, Ónan, Sela, Peres og Sera. En Ger og Ónan dóu í Kanaanslandi. Synir Peresar voru Hesrón og Hamúl.

13Synir Íssakars voru Tóla, Púva, Job og Símron.

14Synir Sebúlons voru Sered, Elon og Jahleel.

15Þessir voru synir Leu sem hún fæddi Jakobi í Mesópótamíu auk Dínu, dóttur hans. Alls voru synir hans og dætur þrjátíu og þrjú að tölu.

16Synir Gaðs voru Sífjón, Haggí, Súní, Esbon, Erí, Aródí og Arelí.

17Synir Assers voru Jimna, Jísva, Jísví, Bría og Sera var systir þeirra. Synir Bría voru Heber og Malkíel.

18Þessir voru synir Silpu, ambáttarinnar sem Laban hafði gefið Leu, dóttur sinni. Alls ól Silpa Jakobi sextán börn.

19Synir Rakelar, konu Jakobs, voru Jósef og Benjamín.

20Í Egyptalandi fæddust Jósef synirnir Manasse og Efraím sem Asenat, dóttir Pótífera, prests í Ón, ól honum.

21Synir Benjamíns voru Bela, Beker, Asbel, Gera, Naaman, Ehí, Rós, Múppím, Húppím og Ard.

22Þetta voru synir Rakelar sem hún ól Jakobi, fjórtán talsins.

23Sonur Dans var Húsín.

24Synir Naftalí voru Jahseel, Gúní, Jeser og Sillem.

25Þessir voru synir Bílu, ambáttarinnar sem Laban hafði gefið Rakel, dóttur sinni. Alls ól hún Jakobi sjö syni.

26Þeir niðjar Jakobs sem komu til Egyptalands voru sextíu og sex auk tengdadætra hans.

27Af því að Jósef höfðu fæðst tveir synir í Egyptalandi voru ættmenni Jakobs, sem komu til Egyptalands, alls sjötíu að tölu.

Jakob sest að í Egyptalandi

28Jakob hafði sent Júda á undan sér til Jósefs svo að hann gæti vísað honum veginn til Gósen. Þegar þeir komu þangað

29lét Jósef beita fyrir vagn sinn og fór á móti Ísrael, föður sínum, til Gósen og er þeir hittust þar féll hann um háls honum og grét lengi.

30Ísrael sagði við Jósef: „Nú er ég búinn undir dauða minn fyrst ég hef séð auglit þitt og veit að þú ert enn á lífi.“

31Jósef sagði við bræður sína og annað skyldfólk föður síns: „Nú ætla ég að fara og láta faraó vita að bræður mínir og skyldfólk föður míns, sem var í Kanaanslandi, sé komið til mín og segja við hann:

32Mennirnir eru hjarðmenn, þeir hafa stundað kvikfjárrækt og hafa tekið sauði sína og nautpening sinn með sér og allt sem þeir eiga.

33Þegar nú faraó lætur kalla á ykkur og spyr hvaða atvinnu þið stundið,

34þá skuluð þið svara: Þjónar þínir hafa stundað kvikfjárrækt frá barnæsku allt til þessa dags, bæði við og feður okkar. Þá munuð þið fá að búa í Gósenlandi því að Egyptar hafa andstyggð á öllum hjarðmönnum.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help