Jesaja 17 - Biblían (2007)

Gegn Damaskus

1Boðskapur um Damaskus:

Damaskus verður eytt sem borg

og hún lögð í rúst.

2Borgirnar í Aróer verða yfirgefnar,

þær verða að bithögum

þar sem hjarðir leggjast og enginn styggir þær.

3Varnarvirkið í Efraím mun hverfa

og konungdómurinn frá Damaskus

og fyrir leifum Arams mun fara

eins og vegsemd Ísraelsmanna,

segir Drottinn allsherjar.

4Á þeim degi mun glæsileiki Jakobs dvína

og fitan á líkama hans rýrna.

5Þá mun fara líkt og þegar kornskurðarmaður

safnar kornstönglum í fangið

og sníður af öxin með hendinni,

líkt og þegar öx eru tínd í Refaímdal.

6En þar verður eftirtekja

eins og þegar ólífutré er skekið,

tvær eða þrjár ólífur á efstu greinum,

fjórar eða fimm í limi ávaxtatrésins,

segir Drottinn, Guð Ísraels.

7Á þeim degi mun maðurinn horfa til skapara síns og beina sjónum til Hins heilaga Ísraels.

8Hann mun ekki horfa á ölturun, verk handa sinna sem fingur hans sjálfs gerðu, og ekki heldur á Asérustólpana né reykelsisölturun.

9Á þeim degi munu víggirtar borgir hans verða eins og mannauðar borgir sem Hevítar og Amorítar yfirgáfu vegna framsóknar Ísraelsmanna, og landið verða að eyðimörk.

10Þú hefur gleymt Guði hjálpræðis þíns

og minnist ekki klettsins sem er hæli þitt

því að þú gróðursetur garða handa Hinum yndislega

og plantar þar framandi teinungum,

11kemur þeim til sama dag og þú setur þá niður

og lætur þá blómstra morguninn sem þú plantar þeim.

Uppskeran er horfin á degi sjúkdóms og óbærilegra kvala.

Árásarmenn reknir á flótta

12Vei! Gnýr fjölda þjóða

eins og brimgnýr,

niður frá þjóðflokkum

eins og niður mikilla fossa.

13Drottinn hastar á þá og þeir flýja langt í burt,

þeir feykjast burt á fjöllum eins og hismi,

eins og rykmökkur fyrir stormi.

14Að kvöldi hvolfist óttinn yfir

en fyrir dögun eru þeir á burt.

Þetta er hlutskipti þeirra sem ræna oss,

hlutur þeirra sem stela frá oss.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help