Síðari kroníkubók 7 - Biblían (2007)

Vígsla musterisins: Fórnir og lok athafnarinnar

1Þegar Salómon hafði lokið bæn sinni kom eldur af himni ofan, eyddi brennifórninni og sláturfórnunum og dýrð Drottins fyllti húsið.

2Prestarnir gátu ekki gengið inn í hús Drottins því að dýrð Drottins fyllti hús Drottins.

3Þegar allir Ísraelsmenn sáu eldinn koma ofan og dýrð Drottins yfir húsinu vörpuðu þeir sér á steinstéttina og hneigðu ásjónu sína til jarðar, sýndu Drottni lotningu og lofuðu hann: „Því að hann er góður, miskunn hans varir að eilífu.“

4Síðan færði konungurinn og allt fólkið sláturfórnir fyrir augliti Drottins.

5Salómon konungur færði tuttugu og tvö þúsund naut og hundrað og tuttugu þúsund sauði í sláturfórn. Þannig vígði konungurinn og allt fólkið hús Guðs.

6Prestarnir stóðu á sínum stað og einnig Levítarnir sem léku á hljóðfæri Drottins. Davíð konungur hafði látið gera þessi hljóðfæri til þess að lofa Drottin með orðunum: „Því að miskunn hans varir að eilífu.“ Þegar Levítarnir fluttu lofgjörð Davíðs með þeim stóðu prestarnir andspænis þeim og þeyttu lúðra en allur Ísrael stóð á meðan.

7Salómon helgaði miðhluta forgarðsins fyrir framan hús Drottins. Hann fórnaði þar brennifórnunum og feiti heillafórnarinnar því að eiraltarið, sem Salómon hafði látið gera, rúmaði ekki brennifórnina, kornfórnina og feiti heillafórnarinnar.

8Að þessu sinni hélt Salómon hátíðina í sjö daga ásamt öllum Ísrael sem var mjög mikill söfnuður frá svæðinu frá Lebó Hamat að landamæralæk Egyptalands.

9Á áttunda degi héldu þeir lokahátíð því að þeir höfðu haldið vígsluhátíð altarisins í sjö daga og hátíðina í sjö daga.

10Á tuttugasta og þriðja degi sjöunda mánaðarins sendi konungur fólkið til tjalda sinna glatt og ánægt vegna allra velgjörða Drottins við Davíð og Salómon og eignarlýð sinn, Ísrael.

Önnur opinberun Drottins

11Þegar Salómon hafði reist hús Drottins og hús konungs og komið í verk öllum áætlunum sínum um hús Drottins og hús sitt,

12birtist Drottinn Salómon nótt eina og sagði við hann: „Ég hef heyrt bæn þína og valið þennan stað sem fórnarstað minn.

13Byrgi ég himininn svo að ekki rigni eða skipi engisprettum að rótnaga landið eða sendi drepsótt til þjóðar minnar

14og þjóð mín, sem nafn mitt hefur verið hrópað yfir, auðmýkir sig, biður, leitar auglits míns og lætur af illri breytni sinni, mun ég heyra á himninum, fyrirgefa synd hennar og græða upp land hennar.

15Héðan í frá munu augu mín vera opin og eyru mín munu hlusta á bænir á þessum stað.

16Hér með hef ég valið þetta hús og helgað það til þess að nafn mitt búi þar ævinlega. Augu mín og hjarta munu ætíð dvelja þar.

17Ef þú gengur frammi fyrir augliti mínu eins og Davíð, faðir þinn, og ef þú gerir allt sem ég hef boðið þér, heldur ákvæði mín og lög,

18mun ég styðja hásæti konungdóms þíns eins og ég hef heitið Davíð, föður þínum, með sáttmála: Niðjar þínir munu ætíð sitja í hásæti Ísraels.

19En ef þið snúið ykkur frá mér og haldið ekki lög þau og reglur sem ég hef sett ykkur en farið og þjónið öðrum guðum og sýnið þeim lotningu,

20mun ég uppræta ykkur úr landinu sem ég hef gefið ykkur. Húsið, sem ég hef helgað nafni mínu, mun ég fjarlægja frá augliti mínu og ég mun láta það verða að háði og spotti meðal allra þjóða.

21Hverjum þeim sem gengur fram hjá þessu háreista húsi mun blöskra og hann mun spyrja: Hvers vegna hefur Drottinn farið svona með þetta land og þetta hús?

22Og svarið verður: Af því að íbúarnir yfirgáfu Drottin, Guð feðra sinna, sem leiddi þá út úr Egyptalandi. Þeir bundust öðrum guðum, sýndu þeim lotningu og þjónuðu þeim. Þess vegna hefur hann sent allt þetta böl yfir þá.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help