1Þennan boðskap flutti Jeremía spámaður Barúk Neríasyni þegar hann var að skrifa þessar ræður á bók eftir Jeremía, á fjórða stjórnarári Jójakíms Jósíasonar Júdakonungs:
2Svo segir Drottinn, Guð Ísraels, um þig, Barúk:
3Þú hefur sagt: Vei mér því að Drottinn bætir kvíða við kvöl mína. Ég er orðinn örmagna af andvörpum mínum og finn enga hvíld.
4Því skaltu segja við hann: Svo segir Drottinn: Ég mun brjóta niður það sem ég hef byggt, ég mun uppræta það sem ég hef gróðursett um allt land.
5Ætlarðu þér mikinn hlut? Láttu af því. Sjá, ég sendi ógæfu yfir allt dauðlegt, segir Drottinn. En þér mun ég gefa líf þitt að herfangi hvert sem þú ferð.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.