Jesaja 27 - Biblían (2007)

1Á þeim degi mun Drottinn með hinu hvessta, stóra og sterka sverði sínu refsa Levjatan, hinum flughraða dreka, Levjatan, hinum hringaða dreka. Hann mun bana sæskrímslinu.

Söngur um víngarð Drottins

2Á þeim degi skuluð þér syngja um hinn blómlega víngarð:

3Ég, Drottinn, er vörður hans,

ég vökva hann sífellt

og gæti hans dag og nótt

svo að honum verði ekki spillt.

4Reiður er ég ekki

en finni ég þyrna og þistla

ræðst ég á þá

og kveiki í þeim öllum

5nema menn leiti hælis hjá mér,

semji við mig frið,

semji frið við mig.

6Á komandi dögum festir Jakob rætur,

Ísrael blómgast og ber fræ

og fyllir heiminn ávöxtum.

Fyrirgefning synda Ísraels

7Hefur Drottinn lostið Ísrael

eins og hann laust þá sem lustu hann?

Var Ísrael myrtur eins og morðingjar hans voru myrtir?

8Nei, með brottrekstri og útlegð

höfðaðir þú, Drottinn, mál á hendur honum,

hræddir hann og hraktir brott með veðurofsa

daginn sem austanstormurinn geisaði.

9Þess vegna verður sekt Jakobs afplánuð

og þetta er ávöxtur þess að synd hans er fjarlægð:

Hann gerir alla altarissteina að muldum kalksteini,

hvorki Asérustólpar né reykelsisölturu munu uppi standa.

10Hin víggirta borg er einangruð,

auður og yfirgefinn bústaður eins og óbyggðin.

Þar eru kálfar á beit,

þar leggjast þeir og bíta trjákvistina.

11Þegar greinarnar þorna eru þær brotnar af,

konur koma og kveikja eld við þær.

Þar sem þetta er skilningslaus þjóð

sýnir sá sem skapaði hana enga miskunn

og sá sem mótaði hana auðsýnir henni enga náð.

Ísraelsmenn snúa aftur

12Á þeim degi mun Drottinn þreskja korn

frá Efratsbökkum að Egyptalandsá

og þá munuð þér, Ísraelsniðjar,

tíndir upp, einn og einn.

13Á þeim degi verður mikið hafurshorn þeytt

og þeir koma heim sem höfðu villst í Assýríu

og þeir sem höfðu dreifst um Egyptaland.

Þeir munu dýrka Drottin á fjallinu helga í Jerúsalem.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help