Jobsbók 24 - Biblían (2007)

1Hvers vegna ákveður Hinn almáttki ekki tímann

og hví sjá ekki þeir daga hans sem þekkja hann?

2Menn færa landamerki úr stað,

ræna hjörðum og halda þeim til beitar,

3asna munaðarlausra reka þeir burt

og taka uxa ekkjunnar að veði,

4þeir hrekja fátæka af veginum

og umkomulausir í landinu fara í felur.

5Eins og villiasnar í eyðimörk

ganga þeir til starfa sinna,

þeir leita fæðu á gresjunni,

matar handa börnum sínum.

6Á sléttunni afla þeir fóðurs

og tína síðustu berin í víngarði hins óguðlega.

7Þeir eru naktir um nætur, klæðlausir,

og hafa enga ábreiðu í kuldanum,

8verða gegndrepa í fjallaskúrunum

og híma skjóllausir utan í klettunum.

9Þeir slíta föðurleysingja frá brjósti móður

og brjóstmylkinga umkomulausra taka þeir að veði.

10Þeir ganga naktir, án klæða,

og hungraðir bera þeir kornknippi.

11Milli ólífutrjánna pressa þeir olíu

og troða vínþróna kvaldir af þorsta.

12Deyjandi stynja í borginni,

særðir hrópa á hjálp

en Guð bænheyrir ekki.

13Til eru þeir sem rísa gegn ljósinu,

þeir skynja ekki leiðir þess

og fara ekki vegi þess.

14Morðinginn rís úr rekkju fyrir dagmál

og drepur umkomulausa og snauða.

Og að næturþeli læðist hann um sem þjófur.

15Auga hórkarlsins bíður rökkursins

og hann hugsar: „Ekkert auga sér mig,“

og hylur andlit sitt skýlu.

16Menn brjótast inn í hús í myrkri,

á daginn eru þeir í felum,

þeir þekkja ekki ljósið.

17Morgunninn er þeim öllum myrkur

þar sem þeir gjörþekkja ógnir myrkursins.

18Þeir eru gárur á vatni,

bölvaður er hlutur þeirra í landinu

svo að enginn fer til víngarðanna.

19Þurrkur og hiti eyða leysingavatni,

undirheimar þeim sem hafa syndgað.

20Móðurkviður gleymir honum,

maðkur gæðir sér á honum,

hans verður aldrei minnst framar,

ranglætið var brotið niður eins og tré.

21Hann fór illa með óbyrju sem engin börn elur

og gerði ekkjunni ekkert gott.

22En Guð sviptir valdsmönnum burt með afli sínu,

þeir rísa upp og enginn er óhultur um líf sitt.

23Guð veitir þeim öryggi og þeir fá stuðning

og augu hans vaka yfir vegum þeirra.

24Þeir eru hafnir til vegs eitt andartak, svo er öllu lokið,

þeir verða beygðir og skreppa saman eins og malurt,

visna eins og ax á kornstöng.

25Og ef það er eigi svo, hver getur þá sannað að ég ljúgi

og gert orð mín að engu?

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help