Sálmarnir 47 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Kóraítasálmur.

2Klappið saman lófum, allar þjóðir,

fagnið fyrir Guði með gleðiópi

3því að Drottinn, Hinn hæsti, er ógurlegur,

voldugur konungur yfir allri jörðinni.

4Hann leggur undir oss lýði

og þjóðir fyrir fætur vora.

5Hann valdi erfðaland oss til handa,

stolt Jakobs, sem hann elskar. (Sela)

6Guð er upp stiginn með fagnaðarópi,

við lúðurhljóm er Drottinn upp stiginn.

7Syngið Guði, syngið,

syngið konungi vorum lof, syngið,

8því að Guð er konungur yfir allri jörðinni,

syngið honum lofsöng.

9Guð er konungur yfir þjóðunum,

Guð situr í sínu heilaga hásæti.

10Leiðtogar þjóðanna safnast saman

ásamt lýð Abrahams Guðs

því að Guðs eru skildirnir á jörðu,

hann er hátt upp hafinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help