1Drottinn talaði til Móse og sagði:
2„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu við þá: Þegar þið komið til landsins, sem þið munuð setjast að í og ég mun gefa ykkur,
3og þið ætlið að undirbúa eldfórn til Drottins, brennifórn eða sláturfórn til að efna heit eða sem sjálfviljafórn eða fórn á hátíðum ykkar til að færa Drottni þekkan ilm af nauti eða sauði,
4skal hver sem ber fram fórnargjöf sína til Drottins bera fram tíunda hluta úr efu af fínu mjöli, blönduðu fjórðungi úr hín af olíu í kornfórn.
5Þú skalt færa fjórðung úr hín af víni í dreypifórn með hverju lambi sem borið er fram sem brennifórn eða sláturfórn.
6Hins vegar skaltu færa í kornfórn með hverjum hrút tvo tíundu hluta úr efu af fínu mjöli, blönduðu þriðjungi hínar af olíu.
7Einnig skaltu bera fram þriðjung hínar af víni í dreypifórn. Þetta er Drottni þekkur ilmur.
8En þegar þú býrð naut til brennifórnar eða sláturfórnar til að efna heit eða sem heillafórn til Drottins
9skaltu bera fram í kornfórn þrjá tíundu úr efu af fínu mjöli, blönduðu hálfri hín af olíu.
10Einnig skaltu færa fram hálfa hín af víni í dreypifórn. Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
11Þannig skal farið með sérhvert naut, sérhvern hrút og sérhvert lamb eða kið.
12Þannig skuluð þið fara með sérhvert dýr, hversu mörg sem þau kunna að vera.
13Sérhver innfæddur maður skal fara eftir þessu þegar hann færir Drottni eldfórn sem þekkan ilm.
14En þegar aðkomumaður nýtur verndar meðal ykkar eða einhver, sem hefur dvalið hjá ykkur í marga ættliði, færir Drottni eldfórn sem þekkan ilm skal hann fara eins að og þið.
15Ein og sömu lög gilda fyrir ykkur og aðkomumann sem nýtur verndar, það er ævarandi lagaákvæði sem gildir frá kyni til kyns.
16Sömu lög og sömu reglur gilda fyrir ykkur og aðkomumann sem nýtur verndar hjá ykkur.“
17Drottinn talaði til Móse og sagði:
18„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu við þá: Þegar þið komið inn í landið, sem ég er í þann veginn að leiða ykkur inn í
19og þið eruð farnir að eta brauð landsins, skuluð þið færa Drottni fórnargjöf.
20Af fyrsta brauðdeigi ykkar skuluð þið færa Drottni köku að gjöf. Þannig skuluð þið fórna henni, eins og fórnargjöfinni af þreskivellinum.
21Þið skuluð bera hana fram sem gjöf til Drottins frá kyni til kyns af fyrsta brauðdeigi ykkar.
Óviljaverk22Þegar ykkur verður það á að halda ekki öll þau boð sem Drottinn lagði fyrir Móse,
23allt sem Drottinn hefur boðið ykkur fyrir munn Móse, frá þeim degi er Drottinn bauð það og síðan frá kyni til kyns,
24skal allur söfnuðurinn búa naut til brennifórnar. Ef yfirsjónin varð án vitneskju safnaðarins skal allur söfnuðurinn búa ungneyti í brennifórn sem þekkan ilm fyrir Drottin. Kornfórn, sem heyrir til, og dreypifórnin skal vera samkvæmt reglunum og að auki geithafur í syndafórn.
25Presturinn skal friðþægja fyrir allan söfnuð Ísraelsmanna. Þá verður þeim fyrirgefið því að þetta var yfirsjón og þeir hafa fært fram fórnargjöf sína sem eldfórn til Drottins og fært syndafórn sína fram fyrir auglit Drottins vegna yfirsjónar sinnar.
26Öllum söfnuði Ísraelsmanna og aðkomumanninum, sem nýtur verndar hjá ykkur, verður fyrirgefið því að yfirsjónin snerti allan söfnuðinn.
27Syndgi einhver af vangá skal hann færa veturgamla geit í syndafórn.
28Prestur skal friðþægja frammi fyrir augliti Drottins fyrir þann sem yfirsjón hefur hent og varð sekur af vangá og honum verður fyrirgefið.
29Sömu lög um yfirsjónir skulu gilda fyrir þá Ísraelsmenn sem fæddir eru í landinu og aðkomumann sem nýtur verndar á meðal þeirra.
30En sá sem syndgar af ásetningi, hvort sem hann er innborinn eða aðkomumaður, hefur smánað Drottin: Sá maður skal upprættur úr þjóð sinni.
31Hann hefur smánað orð Drottins og brotið boð hans: Sá maður skal upprættur, sekt hans hvílir á honum.“
Brot gegn hvíldardagsboðinu32Þegar Ísraelsmenn voru í eyðimörkinni stóðu þeir einhverju sinni mann að því að safna viði á hvíldardegi.
33Þeir sem stóðu hann að verki leiddu hann fyrir Móse, Aron og allan söfnuðinn.
34Þeir settu hann í varðhald því að enn hafði ekki verið ákveðið hvað gera skyldi við hann.
35Þá sagði Drottinn við Móse:
„Þennan mann verður að lífláta, allur söfnuðurinn skal grýta hann utan við herbúðirnar.“
36Allur söfnuðurinn fór þá með hann út fyrir herbúðirnar og grýtti hann til bana eins og Drottinn hafði boðið Móse.
Skúfar á klæðum Ísraelsmanna37Drottinn talaði til Móse og sagði:
38„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu við þá að þeir skuli gera skúfa á klæðafald sinn kynslóð eftir kynslóð. Þið skuluð hafa purpurabláan þráð í hverjum skúfi á klæðafaldinum
39og hann skal tilheyra skúfinum. Þegar þið lítið á þá eigið þið að minnast allra boða Drottins og fylgja þeim en ekki elta það sem hjarta ykkar og augu girnast og þið hórist með.
40Þannig eigið þið að minnast allra boða minna og fylgja þeim svo að þið verðið heilagir fyrir Guði ykkar.
41Ég er Drottinn, Guð ykkar, sem leiddi ykkur út úr Egyptalandi til þess að vera ykkar Guð. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.