Síraksbók 25 - Biblían (2007)

Þeir sem eiga lof skilið

1Þrennt er það sem ég hef yndi af

og það er fagurt í augum Guðs og manna:

samlyndi bræðra, vinfengi granna

og hjón sem lifa saman í eindrægni.

2Þrjá hópa manna hata ég

og hef hreinustu andstyggð á hátterni þeirra:

drembinn fátæklingur, lyginn auðmaður

og gamall heimskingi sem drýgir hór.

3Hafir þú ekkert lagt fyrir í æsku,

hvað mun þér þá hlotnast aldurhnignum?

4Dómgreind fer vel gráum hárum

og ráðhyggni rosknum mönnum.

5Spekin er öldruðum mönnum prýði,

hyggindi og ráðsnilld virðingarmönnum.

6Öldungum er reynslan heiðurssveigur

en ótti Drottins vegsemd þeirra.

7Með sjálfum mér tel ég níu hópa manna sæla,

frá hinum tíunda mun tunga mín greina:

Sá maður sem börn hans gleðja

og sá sem lifir fall fjandmanna.

8Sæll er sá sem býr með hygginni konu,

sá sem aldrei varð á í orði,

sá sem ei þjónaði sér minni manni.

9Sæll er sá sem hyggindi hlaut,

sá sem hlýtt er á með athygli.

10Hversu mikill er sá sem spekina fann

en enginn er fremri þeim sem óttast Drottin.

11Ótti Drottins er æðri öllu öðru,

við hvern fær sá jafnast er ber hann í brjósti?

12Guðsótti er upphaf ástar á Drottni

og trú upphaf þess að halda sig að honum.Um konur

13Ekkert jafnast á við sár á hjarta

og engin illska á við illsku konu.

14Engin ógæfa jafnast á við þá sem hatursmenn valda

og engin hegning á við hegningu fjandmanna.

15Ekkert höfuð er skæðara höggormshöfði,

engin heift brennur heitar en heift konu.

16Fremur vil ég búa hjá ljóni og dreka

en með illri konu.

17Illska konu afmyndar ásýnd hennar,

sem birna verður hún blökk í framan.

18Er maður hennar situr í grannahópi

stynur hann þungan ósjálfrátt.

19Allt illt eru smámunir hjá illsku konu,

megi hún hreppa hlutskipti syndara.

20Eins og sandskriða fyrir öldungsfæti

er málug kona hóglátum manni.

21Eigi skaltu falla fyrir fríðleik konu

né girnast að hafa gleði af henni.

22Reiðiköst, frekja og auðmýking mikil

bitnar á þeim manni sem kona sér fyrir.

23Deigum hug og dimmum svip

og sáru hjarta veldur vond kona.

Máttlausar verða hendur og magnvana kné

þess manns sem kona gerir óhamingjusaman.

24Til konu á syndin rót sína að rekja,

hennar vegna deyjum vér allir.

25Lát vatnið ei fá útrás,

né leyf illri konu að vera orðdjörf.

26Ef hún er þér ekki samstiga

þá skaltu skilja við hana.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help