1Þegar við höfðum slitið okkur frá þeim létum við í haf og héldum beina leið til Kós, daginn eftir til Ródos og þaðan til Patara.
2Þar hittum við á skip er fara átti til Fönikíu. Stigum við á það og létum í haf.
3Við höfðum landsýn af Kýpur, létum hana á bakborða og sigldum til Sýrlands og tókum höfn í Týrus. Þar átti skipið að leggja upp farminn.
4Við leituðum uppi lærisveinana og dvöldumst þar sjö daga. Þeir sögðu Páli af gift andans að hann skyldi ekki halda áfram til Jerúsalem.
5Að þessum dögum liðnum lögðum við af stað. Fylgdu þeir okkur allir á veg með konum og börnum út fyrir borgina. Við féllum á kné í fjörunni og báðumst fyrir.
6Þar kvöddumst við. Við stigum á skip en hin sneru aftur heim til sín.
7Við komum til Ptólemais frá Týrus og lukum þar sjóferðinni. Við heilsuðum trúsystkinunum og dvöldumst hjá þeim daglangt.
8Daginn eftir fórum við þaðan og komum til Sesareu, gengum inn í hús Filippusar trúboða, sem var einn af þeim sjö, og dvöldumst hjá honum.
9Hann átti fjórar ógiftar dætur, gæddar spádómsgáfu.
10Þegar við höfðum dvalist þar nokkra daga kom spámaður einn ofan frá Júdeu, Agabus að nafni.
11Hann kom til okkar, tók belti Páls, batt fætur sína og hendur og mælti: „Svo segir heilagur andi: Þannig munu Gyðingar í Jerúsalem binda þann mann sem þetta belti á og selja hann í hendur heiðingjum.“
12Þegar við heyrðum þetta lögðum við og heimamenn að Páli að fara ekki upp til Jerúsalem.
13En hann sagði: „Hví grátið þið og hrellið hjarta mitt? Ég er eigi aðeins reiðubúinn að láta binda mig heldur og að deyja í Jerúsalem fyrir nafn Drottins Jesú.“
14Honum varð eigi talið hughvarf. Þá létum við kyrrt og sögðum: „Verði Drottins vilji.“
15Að þessum dögum liðnum bjuggumst við til ferðar og héldum upp til Jerúsalem.
16Nokkrir lærisveinar frá Sesareu urðu okkur samferða. Þeir fóru með okkur til Mnasons nokkurs frá Kýpur, lærisveins frá elstu tíð, og skyldum við gista hjá honum.
Páll og Jakob17Þegar við komum til Jerúsalem tóku trúsystkinin okkur feginsamlega.
18Næsta dag gekk Páll með okkur til Jakobs og allir öldungarnir komu þangað.
19Páll heilsaði þeim og lýsti síðan nákvæmlega öllu sem Guð hafði gert meðal heiðingjanna með þjónustu hans.
20Þeir vegsömuðu Guð fyrir það sem þeir heyrðu og sögðu við hann: „Þú sérð, bróðir, hve margir tugir þúsunda það eru meðal Gyðinga sem trú hafa tekið og allir eru þeir vandlátir um lögmálið.
21En þeim hefur verið sagt að þú kennir öllum Gyðingum, sem eru meðal heiðingja, að hverfa frá Móse og segir að þeir skuli hvorki umskera börn sín né fylgja siðum okkar.
22Hvað á nú að gera? Víst mun það spyrjast að þú sért kominn.
23Ger því þetta sem við nú segjum þér. Hjá okkur eru fjórir menn sem heit hvílir á.
24Tak þá með þér, lát hreinsast með þeim og ber kostnaðinn fyrir þá að þeir geti látið raka höfuð sín. Þá mega allir sjá að ekkert er hæft í því sem þeim hefur verið sagt um þig heldur gætir þú lögmálsins sjálfur í breytni þinni.
25En um heiðingja sem trú hafa tekið höfum við gefið út bréf og ályktað að þeir skuli varast kjöt fórnað skurðgoðum, blóð, kjöt af köfnuðum dýrum og saurlifnað.“
26Páll tók að sér mennina og lét hreinsast með þeim næsta dag. Síðan gekk hann inn í helgidóminn og gerði kunnugt hvenær hreinsunardagarnir væru á enda og fórnin fyrir hvern þeirra skyldi fram borin.
Páll tekinn höndum27Þegar dagarnir sjö voru nær liðnir sáu Gyðingar frá Asíu Pál í helgidóminum. Þeir komu öllu fólkinu í uppnám, lögðu hendur á hann
28og hrópuðu: „Ísraelsmenn, veitið nú lið. Þetta er maðurinn sem alls staðar kennir öllum það sem er andstætt lýðnum, lögmálinu og þessum stað. Og nú hefur hann auk heldur farið með Grikki inn í helgidóminn og saurgað þennan heilaga stað.“
29En þeir höfðu áður séð Trófímus frá Efesus með honum í borginni og hugðu að Páll hefði farið með hann inn í helgidóminn.
30Öll borgin varð uppvæg, fólk þusti að, þeir tóku Pál og drógu hann út úr helgidóminum. Jafnskjótt var dyrunum læst.
31Þeir ætluðu að lífláta hann en hersveitarforingjanum var tjáð að öll Jerúsalem væri í uppnámi.
32Hann brá við og tók með sér hermenn og hundraðshöfðingja og hljóp niður til þeirra. Þegar þeir sáu hersveitarforingjann og hermennina hættu þeir að berja Pál.
33Hersveitarforinginn kom þá að, tók hann og skipaði að binda hann tvennum fjötrum og spurði hver hann væri og hvað hann hefði gert.
34En sitt kallaði hver í mannfjöldanum. Þegar hann gat ekki orðið neins vísari sökum óróans bauð hann að fara með hann upp í kastalann.
35Þegar komið var að þrepunum urðu hermennirnir að bera hann vegna ofsans í fólkinu
36en múgur manns fylgdi eftir og æpti: „Burt með hann!“
Varnarræða Páls37Um leið og fara átti með Pál inn í kastalann segir hann við hersveitarforingjann: „Leyfist mér að tala nokkur orð við þig?“
Hann svaraði: „Kannt þú grísku?
38Ekki ert þú þá Egyptinn sem æsti til uppreisnar á dögunum og fór með morðvargana fjögur þúsund út í óbyggðir?“
39Páll sagði: „Ég er Gyðingur, frá Tarsus í Kilikíu, borgari í ekki ómerkum bæ. Ég bið þig, leyf mér að tala til fólksins.“
40Hann leyfði það. Páll bandaði hendi til fólksins þar sem hann stóð á þrepunum. Þegar hann hafði fengið gott hljóð mælti hann til þeirra á hebreska tungu:
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.