1Móse og öldungar Ísraels gáfu fólkinu eftirfarandi fyrirmæli:
„Haldið öll þau fyrirmæli sem ég set ykkur í dag.
2Þegar þið eruð komin yfir Jórdan og inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér þá skalt þú reisa nokkra stóra steina. Þú skalt kalka þá að utan
3og skrifa á þá öll ákvæði þessa lögmáls þegar þú ert kominn yfir ána, svo að þú komist inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér, land sem flýtur í mjólk og hunangi, eins og Drottinn, Guð feðra þinna, hefur heitið þér.
4Þegar þið eruð komin yfir Jórdan skuluð þið reisa þessa steina á Ebalfjalli, sem ég hef gefið ykkur fyrirmæli um í dag, og kalka þá.
5Þar skaltu einnig reisa Drottni, Guði þínum, altari. Steinana máttu ekki höggva með járnverkfærum.
6Úr óhöggnum steinum skaltu reisa altari Drottins, Guðs þíns. Á því skaltu færa Drottni, Guði þínum, brennifórnir.
7Þú skalt slátra á því dýrum til heillafórnar og matast þar og gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði þínum.
8Á steinana skaltu skrifa öll ákvæði þessa lögmáls með skýru letri.“
9Móse og Levítaprestarnir ávörpuðu allan Ísrael og sögðu: „Ver hljóður og hlýð á, Ísrael! Í dag ertu orðinn lýður Drottins, Guðs þíns.
10Þú átt að hlýða rödd Drottins, Guðs þíns, og fylgja boðum hans og lögum sem ég set þér í dag.“
11Sama dag gaf Móse fólkinu eftirfarandi fyrirmæli:
12„Þessir ættbálkar eiga að standa á Garísímfjalli til að blessa fólkið þegar þið eruð komin yfir Jórdan: Símeon, Leví, Júda, Íssakar, Jósef og Benjamín.
13En þessir ættbálkar eiga að standa á Ebalfjalli og lýsa yfir bölvun: Rúben, Gað, Asser, Sebúlon, Dan og Naftalí.
Bölvanir14Síðan eiga Levítarnir að ávarpa alla Ísraelsmenn og hrópa hárri röddu:
15Bölvaður er sá maður sem gerir skurðgoð eða steypt líkneski sem er Drottni viðurstyggð, handaverk smiðs, og reisir það á laun. Allt fólkið skal svara og segja: Amen.
16Bölvaður er sá sem óvirðir föður sinn eða móður. Allt fólkið skal segja: Amen.
17Bölvaður er sá sem færir landamerki nágranna síns úr stað. Allt fólkið skal segja: Amen.
18Bölvaður er sá sem leiðir blindan mann af réttri leið. Allt fólkið skal segja: Amen.
19Bölvaður er sá sem hallar rétti aðkomumanns, munaðarleysingja eða ekkju. Allt fólkið skal segja: Amen.
20Bölvaður er sá sem leggst með konu föður síns því að hann hefur flett upp ábreiðu föður síns. Allt fólkið skal segja: Amen.
21Bölvaður er sá sem hefur samræði við nokkra skepnu. Allt fólkið skal segja: Amen.
22Bölvaður er sá sem leggst með systur sinni, hvort heldur hún er dóttir föður hans eða móður. Allt fólkið skal segja: Amen.
23Bölvaður er sá sem leggst með tengdamóður sinni. Allt fólkið skal segja: Amen.
24Bölvaður er sá sem vegur náunga sinn á laun. Allt fólkið skal segja: Amen.
25Bölvaður er sá sem lætur múta sér til að vega saklausan mann. Allt fólkið skal segja: Amen.
26Bölvaður er sá sem ekki virðir ákvæði þessara laga með því að fylgja þeim. Allt fólkið skal segja: Amen.“
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.