Fimmta Mósebók 12 - Biblían (2007)

Lögbókin

1Þetta eru þau lög og ákvæði sem þið skuluð fylgja af kostgæfni svo lengi sem þið lifið í landinu sem Drottinn, Guð forfeðra þinna, hefur fengið þér. Þið skuluð fylgja þeim svo lengi sem þið lifið í landinu.

Guðsdýrkun á einum stað

2Þið skuluð gereyða öllum helgistöðunum þar sem þjóðirnar, sem þið eigið að ryðja úr vegi, þjónuðu guðum sínum á háum fjöllum, hólum og undir hverju grænu tré.

3Þið skuluð rífa niður ölturu þeirra, brjóta merkisteina þeirra, brenna Asérustólpa þeirra í eldi og höggva skurðgoð þeirra niður og afmá nafn þeirra af staðnum.

4Þið skuluð ekki dýrka Drottin, Guð ykkar, á sama hátt og þessar þjóðir

5heldur skuluð þið leita til þess staðar sem Drottinn, Guð ykkar, mun velja úr öllum löndum ættbálka ykkar með því að setja nafn sitt á hann svo að það búi þar. Þangað skalt þú fara

6og þangað skuluð þið færa brennifórnir ykkar og sláturfórnir, tíundir og afgjöld, heitfórnir og sjálfviljafórnir og frumburði nautgripa ykkar og fénaðar.

7Þar skuluð þið halda fórnarmáltíð frammi fyrir Drottni, Guði ykkar, og gleðjast ásamt fjölskyldum ykkar yfir öllu sem þið hafið aflað með höndum ykkar og Drottinn, Guð þinn, hefur blessað þig með.

8Þið skuluð ekki hegða ykkur þá eins og við gerum hér í dag þegar hver gerir það sem honum gott þykir

9því að þið eruð ekki enn komin á hvíldarstaðinn og inn í erfðalandið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér.

10Þegar þið eruð komin yfir Jórdan og eruð sest að í landinu sem Drottinn, Guð ykkar, skiptir á milli ykkar í erfðalönd veitir hann ykkur frið fyrir öllum fjandmönnum ykkar umhverfis. Þegar þið búið þar óhult

11skuluð þið koma með allt sem ég býð ykkur á staðinn sem Drottinn, Guð ykkar, velur sér til að láta nafn sitt búa á, brennifórnir og sláturfórnir, tíundir og afgjöld og allar dýrmætu gjafirnar sem þið heitið Drottni.

12Þá skuluð þið gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði ykkar, þið sjálf, synir ykkar og dætur, þrælar ykkar og ambáttir og Levítarnir sem búa í borgum ykkar því að þeir hafa hvorki fengið jarðnæði né erfðaland eins og þið.

13En gæt þess vel að færa ekki brennifórnir þínar á hvaða stað sem þér sýnist

14heldur á staðnum sem Drottinn velur í landi eins af ættbálkum þínum. Þar skaltu færa brennifórnir þínar og gera allt sem ég býð þér.

15Hins vegar máttu slátra og neyta kjöts eins oft og þig lystir, í hvaða borg þinni sem vera skal í þeim mæli sem blessun Drottins, Guðs þíns, veitir þér. Jafnt óhreinir menn sem hreinir mega eta það eins og skógargeita- og hjartakjöt.

16En blóðsins megið þið ekki neyta heldur eigið þið að hella því á jörðina eins og vatni.

17Þú skalt ekki neyta tíundar af korni þínu, víni eða olíu í borgum þínum né heldur frumburða nautgripa þinna og sauðfjár og ekki neinna þeirra gjafa, sem þú hefur heitið að færa Drottni, eða sjálfviljagjafa og afgjalda.

18Þessa skalt þú neyta frammi fyrir Drottni, Guði þínum, á staðnum sem Drottinn, Guð þinn, velur sér. Þú skalt neyta þess með sonum þínum og dætrum, þrælum þínum og ambáttum og Levítunum sem búa í borg þinni. Þá skaltu gleðjast frammi fyrir Drottni, Guði þínum, yfir öllu sem þú hefur aflað.

19En gæt þess vel að setja Levítana aldrei hjá svo lengi sem þú lifir í landi þínu.

20Þegar Drottinn, Guð þinn, stækkar land þitt eins og hann hefur heitið þér og þú segir: „Ég ætla að fá mér kjöt,“ af því að þig langar í kjöt, þá máttu eta eins mikið kjöt og þig lystir.

21Ef staðurinn, sem Drottinn, Guð þinn, velur með því að setja nafn sitt á hann, er mjög fjarri þér skaltu slátra nautpeningi og sauðfé sem Drottinn hefur gefið þér eins og ég hef boðið og eta eins mikið og þig lystir í heimaborg þinni.

22Þú mátt neyta þess eins og þegar skógargeitar eða hjartar er neytt, það mega bæði óhreinir menn og hreinir eta saman.

23En varastu að neyta nokkurs af blóðinu því að blóðið er lífið sjálft og þú mátt ekki neyta lífsins ásamt kjötinu.

24Þú mátt ekki neyta þess heldur skaltu hella því á jörðina eins og vatni.

25Þú mátt ekki neyta þess svo að þér og niðjum þínum vegni vel af því að þú gerir það sem er rétt í augum Drottins.

26En hin heilögu afgjöld, sem þér ber að greiða, og áheit, sem þú hefur lofað Drottni, skaltu hafa með þér til þess staðar sem Drottinn velur.

27Brennifórn þína, bæði kjötið og blóðið, skaltu færa á altari Drottins, Guðs þíns. Blóði sláturfórna þinna skal hellt á altari Drottins, Guðs þíns, en kjötið skalt þú eta.

28Gæt þess að halda öll þessi boð, sem ég hef sett þér, svo að þér og niðjum þínum vegni ævinlega vel af því að þú gerir það sem gott er og rétt í augum Drottins, Guðs þíns.

Varað við kanverskri guðsdýrkun

29Þegar Drottinn, Guð þinn, hefur rutt þjóðunum úr vegi í landinu, sem þú ferð inn í til að vinna, og þú ert sestur að,

30gæt þín þá. Ánetjast ekki háttum þeirra eftir að þeim hefur verið rutt úr vegi þínum og þú skalt ekki spyrja um guði þeirra og segja: „Hvernig þjónuðu þessar þjóðir guðum sínum? Ég ætla að fara að eins og þær.“

31Þannig skaltu ekki breyta við Drottin, Guð þinn, því að þegar þessar þjóðir þjónuðu guðum sínum gerðu þær allt sem Drottni, Guði þínum, er viðurstyggð og hann hatar. Jafnvel syni sína og dætur brenndu þær í eldi fyrir guði sína.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help