Sálmarnir 58 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðsmiktam.

2Þér voldugu, talið þér í sannleika það sem rétt er?

Dæmið þér mennina af sanngirni?

3Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu,

hendur yðar deila út ofbeldi.

4Guðlausir menn villast allt frá fæðingu,

lygarar fara villir vegar frá móðurskauti.

5Þeir eru eitraðir sem slanga,

eins og heyrnarlaus eiturnaðra

sem lokar eyrum sínum

6og hlustar ekki á rödd slöngutemjarans,

hins slungna töframanns.

7Guð, brjóttu tennurnar í munni þeirra,

mölvaðu vígtennur ljónanna, Drottinn,

8láttu þá renna í sundur eins og vatn sem seytlar burt,

skrælna eins og gras á vegi,

9eins og snigil sem leysist upp í slím,

andvana fætt barn sem aldrei sér sólina.

10Áður en þyrnar þeirra vaxa saman í runna

feykir hann þeim burt eins og þistlum og illgresi.

11Hinn réttláti mun fagna

þegar hann sér hefndina,

hann mun lauga fætur sína í blóði hinna óguðlegu.

12Þá munu menn segja: „Hinn réttláti hlýtur umbun,

til er Guð sem dæmir á jörðinni.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help