1Þegar Demetríus frétti að Níkanor væri fallinn í stríðinu ásamt liði sínu sendi hann Bakkídes og Alkímus öðru sinni til Júdeu og með þeim hægri fylkingararm hersins.
2Héldu þeir veginn til Gilgal, settust um Massalót í Arbela, unnu borgina og tóku fjölda manns af lífi.
3Í fyrsta mánuði ársins eitt hundrað fimmtíu og tvö slógu þeir síðan upp herbúðum við Jerúsalem.
4Þaðan tóku þeir sig upp og héldu til Beret með tuttugu þúsund fótgönguliða og tvö þúsund riddara.
5Júdas hafði sett upp herbúðir í Elasa og hafði þrjú þúsund manna einvalaliði á að skipa.
6En er menn hans sáu hve óvinaliðið var geysifjölmennt urðu þeir óttaslegnir og margir þeirra komu sér burt úr herbúðunum svo að eftir urðu aðeins átta hundruð manns.
7Þegar Júdas varð þess var að her hans var brott hlaupinn og ekki hjá bardaga komist missti hann móðinn því að enginn tími var til að safna liði.
8Vonsvikinn sagði hann við þá sem eftir voru: „Komum og förum gegn óvinum okkar. Hver veit nema við getum staðist þá í orrustu!“
9Þeir reyndu að fá hann ofan af þessu og sögðu: „Það er með öllu ófært. Reynum heldur að bjarga lífinu. Síðar skulum við og bræður okkar snúa aftur og berjast við óvinina. Við erum allt of fáir.“
10En Júdas svaraði: „Aldrei skal það verða að ég flýi undan þeim. Ef stund okkar er komin þá skulum við deyja hughraustir fyrir bræður okkar og ekki láta eftir flekk á mannorði okkar.“
11Óvinaherinn kom nú út úr herbúðunum og tók sér stöðu gegnt liði Júdasar. Riddurum óvinanna var skipt í tvær fylkingar og undan liðinu fóru menn með steinslöngvur og bogmenn. Í broddi fylkingar voru allir hraustustu hermennirnir.
12Bakkídes hélt sig í hægri fylkingararminum.
Með lúðraþyt sóttu fylkingar óvinanna fram úr tveimur áttum. Menn Júdasar þeyttu einnig lúðra sína.
13Jörðin skalf af hávaða þegar herjunum laust saman og stóð orrustan frá morgni til kvölds.
14Júdas tók eftir því að Bakkídes og kjarni hers hans var í hægra fylkingararmi. Söfnuðust þá allir til hans sem hugaðir voru
15og sigruðu Júdas og menn hans hægri fylkinguna og ráku flótta þeirra er hana skipuðu allt að Asotusfjalli.
16Þegar þeir sem voru í vinstri fylkingararmi sáu að hægri armurinn laut í lægra haldi sneru þeir við og héldu á hæla Júdasi og mönnum hans og réðust að þeim aftan frá.
17Harðnaði þá bardaginn og féllu margir sárir úr báðum liðum.
18Einnig féll Júdas og flýðu þá hinir.
19Jónatan og Símon tóku Júdas bróður sinn og jörðuðu hann í gröf feðra hans í Módein.
20Þeir grétu hann og allur Ísrael harmaði hann mjög, kveinaði og syrgði dögum saman og sagði:
21Hvernig má hetjan vera fallin,
frelsari Ísraels?
22Það sem ósagt er um Júdas, stríð hans og hetjudáðir og stórfengleik er óskráð látið. Þar er af slíkum firnum að taka.
Jónatan tekur við af Júdasi23Þegar Júdas var fallinn frá áræddu lögmálsbrjótar að sýna sig hvarvetna í byggðum Ísraels og öll handbendi ranglætisins að láta til sín taka.
24Um sömu mundir varð mikil hungursneyð og snerist þjóðin til fylgis við þá.
25Bakkídes valdi guðlausa menn og gerði þá að ráðamönnum í landinu.
26Þeir leituðu vini Júdasar uppi og færðu Bakkídesi þá og hann hegndi þeim og auðmýkti þá.
27Varð þvílík þrenging í Ísrael að ekki hafði önnur slík verið síðan spámaður birtist síðast hjá Ísraelsmönnum.
28Þá söfnuðust allir vinir Júdasar saman og sögðu við Jónatan:
29„Frá því Júdas bróðir þinn lést finnst enginn hans líki til að berjast gegn óvinunum og Bakkídesi og þeim löndum okkar sem sýna fjandskap.
30Þess vegna höfum við í dag kjörið þig foringja okkar í hans stað og leiðtoga í stríði okkar.“
31Þann dag tók Jónatan forystu og kom í stað Júdasar bróður síns.
Orrustur Jónatans32Bakkídes varð þessa vís og leitaði færis að deyða Jónatan.
33Að þessu komust Jónatan og Símon bróðir hans og allir liðsmenn þeirra. Flýðu þeir út í auðnina við Tekóa og settu herbúðir við Asfarvatnsbólin.
34Bakkídes frétti þetta á hvíldardegi og hélt með lið sitt yfir ána Jórdan.
35Jónatan hafði sent Jóhannes bróður sinn, sem var foringi þeirra sem ekki báru vopn, til vina sinna, Nabatea, til að biðja þá um að geyma farangur þeirra sem var mikill.
36En Jambrítar komu frá Medeba, gripu Jóhannes og allt sem hann var með og héldu burt með feng sinn.
37Nokkru eftir þessa atburði bárust Jónatan og Símoni bróður hans þau tíðindi að mikið brúðkaup stæði fyrir dyrum hjá Jambrítum. Færu þeir frá Nadabat með brúðina, sem var dóttir eins fremsta höfðingjans í Kanaan, og væri fylgdarliðið fjölmennt.
38Þeir höfðu ekki gleymt morði Jóhannesar bróður síns og fóru og földu sig í leyni við fjallið.
39Þegar þeir lituðust um komu þeir auga á háværan hóp manna sem hafði mikinn farangur meðferðis. Til móts við hann komu brúðguminn, vinir hans og bræður með bumbur, hljóðfæri og mikinn vopnabúnað.
40Jónatan og menn hans réðust á þá úr launsátrinu, vógu að þeim og féllu margir sárir. Þeir sem af komust flýðu til fjalls. Tóku þeir Jónatan allan farangur þeirra herfangi.
41Brúðkaupið breyttist í sorg og hljóðfæraleikurinn í harmakvein.
42En Jónatan og Símon höfðu grimmilega hefnt morðsins á bróður sínum, sneru aftur og héldu út á mýrarnar við Jórdan.
Orrustan við Jórdan43Bakkídes frétti um þetta og kom á hvíldardegi með mikinn her að bökkum Jórdanar.
44Þá sagði Jónatan við menn sína: „Nú verðum við að berjast fyrir lífi okkar en aldrei hefur þunglegar horft.
45Við megum búast við árás bæði á bak og brjóst. Jórdan er á aðra hlið og á hina mýrar og kjarr. Því er hvergi undanfæri.
46Hrópið til himins á hjálp svo að við björgumst úr höndum óvina okkar.“
47Þegar orrustan hófst komst Jónatan í höggfæri við Bakkídes en hann hörfaði undan honum aftur fyrir lið sitt.
48Þá vörpuðu Jónatan og menn hans sér út í Jórdan og syntu yfir um. Óvinirnir komu ekki yfir fljótið á eftir þeim.
49Af liði Bakkídesar féllu um þúsund manns þann daginn.
50Bakkídes hélt aftur til Jerúsalem og lét reisa öflug virki í Júdeu: virki við Jeríkó, Emmaus, Bet Hóron, Betel, Tamnat, Faraton og Tefón. Voru þau búin háum múrum, hliðum og slagbröndum.
51Þar var komið fyrir setuliðum til að fjandskapast við Ísrael.
52Enn fremur víggirti hann borgirnar Bet Súr og Geser, kom fyrir herliði og vistum í þeim og styrkti virkið í Jerúsalem.
53Syni fremstu manna landsins tók hann í gíslingu og hneppti þá í varðhald í virkinu í Jerúsalem.
54Í öðrum mánuði árið eitt hundrað fimmtíu og þrjú fyrirskipaði Alkímus að rífa niður múrinn kringum innri forgarð musterisins. Var það verk spámanna sem hann vildi eyðileggja. En um leið og byrjað var að rífa
55fékk Alkímus slag sem batt enda á athafnir hans. Hann lamaðist, missti málið og gat upp frá því hvorki tjáð sig né ráðstafað eigum sínum.
56Áður en langt um leið dó Alkímus sárlega kvalinn.
57Þegar Bakkídes komst að því að Alkímus var látinn fór hann aftur til konungs. Naut Júdea þá friðar í tvö ár.
Bakkídes bíður ósigur og semur frið58Allir hinir guðlausu tóku að ráða ráðum sínum. Sögðu þeir: „Jónatan og menn hans sitja nú í náðum og eru grandalausir. Sækjum nú Bakkídes svo að hann geti tekið þá alla á einni nóttu.“
59Fóru þeir síðan og ráðguðust við Bakkídes.
60Hann lagði af stað með mikinn her. Sendi hann einnig bréf á laun til allra bandamanna sinna í Júdeu um að þeir ættu að taka Jónatan og menn hans höndum. En það tókst ekki því að uppvíst varð um ráðagerð þeirra.
61Menn Jónatans náðu um fimmtíu af þeim mönnum sem í landinu höfðu verið hvatamenn þessa ódæðis og tóku þá af lífi.
62Jónatan og menn hans og Símon fóru síðan til Bet Basi í auðninni. Endurreistu þeir það sem rifið hafði verið niður í bænum og víggirtu hann.
63Bakkídes komst að þessu. Safnaði hann öllu liði sínu og kom boðum til manna sinna í Júdeu.
64Kom hann síðan og settist um Bet Basi, herjaði á borgina dögum saman og kom upp umsátursvélum.
65En Jónatan skildi Símon bróður sinn eftir í borginni og fór sjálfur út í sveitina með fáeina menn.
66Hann felldi Ódómera og bræður hans og Fasínoríta í tjaldbúðum þeirra. Þegar Jónatan tók að vegna betur með liði sínu
67gerðu Símon og menn hans útrás úr borginni og lögðu eld í umsátursvélarnar.
68Þeir réðust á Bakkídes sem beið fullkominn ósigur fyrir þeim. Gengu þeir mjög hart að honum svo að ráðagerð hans og herför fór út um þúfur.
69Bakkídes varð ofsareiður guðleysingjunum sem höfðu ráðlagt honum að fara inn í landið, drap marga þeirra og afréð að halda aftur til síns heima.
70Er Jónatan frétti þetta sendi hann fulltrúa til Bakkídesar til að semja frið við hann og fá stríðsfanga afhenta.
71Bakkídes tók því vel og fór að tilmælum Jónatans. Hann lagði eið að því að hann mundi aldrei leitast við að gera honum neitt til miska svo lengi sem hann lifði.
72Afhenti Bakkídes Jónatan þá stríðsfanga sem hann hafði áður tekið í Júdeu. Fór hann síðan aftur til lands síns og sté aldrei framar fæti á landsvæði Gyðinga.
73Þannig linnti ófriði í Ísrael. Jónatan settist að í Mikmas, gerðist dómari þjóðarinnar og upprætti hina guðlausu úr Ísrael.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.