1Á níunda stjórnarári Sedekía bar svo við á tíunda degi tíunda mánaðar að Nebúkadnesar Babýloníukonungur kom til Jerúsalem með allan her sinn og settist um hana. Þeir reistu árásarvirki umhverfis
2og var borgin umsetin til ellefta stjórnarárs Sedekía.
3Á níunda degi í fjórða mánuðinum, þegar hungursneyðin var orðin mikil í borginni og enga fæðu að hafa handa íbúunum,
4var borgarmúrinn rofinn. Um nóttina flýðu allir vopnfærir menn gegnum hliðið milli múranna tveggja gegnt garði konungs. Tókst þeim og konungi að flýja, þó að Kaldear umkringdu borgina, og héldu í átt til Arabasléttunnar.
5En hermenn Kaldea veittu konungi eftirför og náðu honum á Jeríkósléttunni. Þá hafði allur her hans yfirgefið hann og tvístrast.
6Þeir tóku konunginn og fóru með hann til Babýloníukonungs í Ribla sem kvað upp dóm yfir honum.
7Hann lét hálshöggva syni Sedekía fyrir augum hans og síðan stinga úr honum augun, setja hann í hlekki og flytja til Babýloníu.
Musterið lagt í eyði8Á sjöunda degi fimmta mánaðar, á nítjánda stjórnarári Nebúkadnesars Babýloníukonungs, kom Nebúsaradan, foringi lífvarðarins og hirðmaður konungs, til Jerúsalem.
9Hann lagði eld að musteri Drottins, húsi konungs og öllum öðrum húsum í Jerúsalem. Hann brenndi öll vegleg hús.
10Hermenn Kaldea, sem foringi lífvarðarins stjórnaði, rifu niður múrana umhverfis Jerúsalem.
11Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, flutti þá sem eftir voru í borginni til Babýloníu, sem og liðhlaupana sem gengið höfðu Babýloníukonungi á hönd og þá sem eftir voru af handverksmönnunum.
12Foringi lífvarðarins skildi aðeins eftir þá fátækustu til að erja víngarða og akra.
13Eirsúlurnar í musteri Drottins, vagngrindurnar og eirhafið í musteri Drottins brutu Kaldear í sundur og fluttu eirinn til Babýlonar.
14Þeir tóku með sér kerin, skóflurnar, skarbítana, skálarnar og öll eiráhöldin sem notuð voru við guðsþjónustuna.
15Foringi lífvarðarins tók einnig eldpönnurnar og skálarnar sem voru úr gulli og silfri.
16Báðar súlurnar, hafið og vagngrindurnar, sem Salómon hafði látið gera fyrir musteri Drottins, var allt gert úr svo miklum eir að það varð ekki vegið.
17Önnur súlan var átján álnir á hæð og súluhöfuðið úr eir. Það var þrjár álnir á hæð og var net með granateplum umhverfis súluhöfuðið. Allt þetta var úr eir. Hin súlan var eins og á henni var einnig net.
Júdamenn herleiddir til Babýlonar18Foringi lífvarðarins tók einnig Seraja yfirprest til fanga, Sefanja prest, sem næstur honum gekk, og hliðverðina þrjá.
19Úr borginni tók hann hirðmann þann sem hafði eftirlit með hermönnunum, fimm af nánustu þjónum konungs, sem enn voru í borginni, ritara hershöfðingjans, sem annaðist herkvaðningu, og sextíu alþýðumenn sem enn voru í borginni.
20Nebúsaradan lífvarðarforingi tók þá höndum og fór með þá til Babýloníukonungs í Ribla.
21Konungur lét höggva þá til bana í Ribla í Hamathéraði. Þannig voru íbúar Júda fluttir í útlegð úr landi sínu.
Gedalía landstjóri í Júda22Nebúkadnesar Babýloníukonungur setti Gedalía, son Ahíkams Safanssonar, yfir það fólk sem eftir var í Júda og Nebúkadnesar hafði skilið eftir.
23Þegar allir liðsforingjarnir og menn þeirra fréttu að Babýloníukonungur hefði skipað Gedalía landstjóra komu þeir til hans í Mispa. Það voru þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan Kareason, Seraja Tanhúmetsson frá Netófa og Jaasanja frá Maaka og menn þeirra.
24Gedalía vann þeim og mönnum þeirra eið og sagði við þá: „Óttist ekki embættismenn Kaldea. Búið áfram í landinu og gangið Babýloníukonungi á hönd. Þá mun ykkur vegna vel.“
25Í sjöunda mánuðinum bar svo til að Ísmael Netanjason, Elísamasonar, sem var af konungsættinni, kom við tíunda mann og hjó Gedalja til bana og þá Júdamenn og Kaldea sem voru hjá honum í Mispa.
26Þá tók allt fólkið sig upp, ungir sem gamlir, ásamt herforingjunum og hélt til Egyptalands af ótta við Kaldea.
Jójakín náðaður27Á þrítugasta og sjöunda útlegðarári Jójakíns Júdakonungs, á tuttugasta og sjöunda degi í tólfta mánuði, árið sem Evíl Merodak varð konungur í Babýlon, náðaði hann Jójakín Júdakonung og sleppti honum úr fangelsinu.
28Hann sýndi honum velvild og vísaði honum til sætis ofar hinum konungunum sem voru hjá honum í Babýlon.
29Jójakín þurfti ekki að bera fangabúning framar og það sem hann átti ólifað sat hann til borðs með konungi.
30Meðan hann lifði veitti konungur Jójakín reglulega það sem hann þurfti sér til daglegs viðurværis.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.