Rómverjabréfið 16 - Biblían (2007)

Kveðjur

1Ég bið ykkur fyrir hana systur okkar, Föbe, sem er djákni safnaðarins í Kenkreu.

2Veitið henni viðtöku vegna Drottins, eins og kristnum ber, og hjálpið henni með allt sem hún þarf að fá hjá ykkur. Hún hefur verið bjargvættur margra, þar á meðal mín sjálfs.

3Heilsið Prisku og Akvílasi, samverkamönnum mínum í Kristi Jesú.

4Þau hafa stofnað lífi sínu í hættu fyrir mig. Fyrir það votta ég þeim þakkir, ekki ég einn heldur og allir söfnuðir meðal heiðinna þjóða.

5Heilsið einnig söfnuðinum sem kemur saman í húsi þeirra. Heilsið Epænetusi, mínum elskaða. Hann er frumgróðinn handa Kristi í Asíu.

6Heilsið Maríu sem mikið hefur erfiðað fyrir ykkur.

7Heilsið Andróníkusi og Júníu, ættmennum mínum og sambandingjum. Þau skara fram úr meðal postulanna og gengu Kristi á hönd á undan mér.

8Heilsið Amplíatusi, elskuðum vini mínum í Drottni.

9Heilsið Úrbanusi, samverkamanni mínum í Kristi, og Stakkýsi, mínum elskaða.

10Heilsið Apellesi sem hefur reynst traustur í trúnni á Krist. Heilsið heimilismönnum Aristóbúls.

11Heilsið Heródíon, ættingja mínum. Heilsið þeim á heimili Narkissusar sem trúa á Drottin.

12Heilsið Tryfænu og Tryfósu sem erfiða fyrir Drottin. Heilsið Persis, hinni elskuðu, sem hefur starfað svo mikið í þjónustu Drottins.

13Heilsið Rúfusi, sem Drottinn hefur útvalið, og móður hans sem er mér einnig móðir.

14Heilsið Asynkritusi, Flegon, Hermesi, Patrobasi, Hermasi og trúsystkinunum hjá þeim.

15Heilsið Fílólogusi og Júlíu, Nerevs og systur hans og Olympasi og öllum heilögum sem með þeim eru.

16Heilsið hvert öðru með heilögum kossi. Allir söfnuðir Krists senda ykkur kveðju.

17Ég minni ykkur, systkin, á að hafa gát á þeim sem vekja sundurþykki og tæla frá þeirri kenningu sem þið hafið numið. Sneiðið hjá þeim.

18Slíkir menn þjóna ekki Drottni vorum Kristi heldur eigin maga, og með blíðmælum og fagurgala blekkja þeir hjörtu hrekklausra manna.

19En hlýðni ykkar er alkunn orðin. Því er ég glaður yfir ykkur og vil að þið séuð vitur í því sem gott er en fákunnandi í því sem illt er.

20Guð friðarins mun bráðlega sundurmola Satan undir fótum ykkar.

Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður.

21Tímóteus, samverkamaður minn, Lúkíus, Jason og Sósípater, ættmenn mínir, biðja að heilsa ykkur.

22Ég, Tertíus, sem hef ritað bréfið, bið að heilsa ykkur í nafni Drottins.

23Gajus, sem hýsir mig og allan söfnuðinn, biður að heilsa ykkur. Erastus, gjaldkeri borgarinnar, og bróðir Kvartus biðja að heilsa ykkur.

24Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með yður. Amen.

25En einn hefur máttinn til þess að styrkja yður með fagnaðarerindi mínu, boðskap Jesú Krists. Þar opinberast leyndardómur sem var hulinn þögn um eilífar tíðir

26en er nú opinber í spámannlegum ritningum og að boði hins eilífa Guðs kunngjörður öllum þjóðum að þær taki hann til sín og trúi.

27Honum, einum alvitrum Guði, sé sakir Jesú Krists dýrðin um aldir alda. Amen.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help