Sálmarnir 30 - Biblían (2007)

1Musterisvígsluljóð. Davíðssálmur.

2Ég lofa þig, Drottinn, því að þú dróst mig upp úr djúpinu

og lést óvini mína ekki hlakka yfir mér.

3Drottinn, Guð minn, ég hrópaði til þín

og þú læknaðir mig.

4Drottinn, þú heimtir sál mína úr helju,

lést mig halda lífi þegar aðrir gengu til grafar.

5Syngið Drottni lof, þér hans trúuðu,

vegsamið hans heilaga nafn.

6Andartak stendur reiði hans

en alla ævi náð hans.

Að kveldi gistir oss grátur

en gleðisöngur að morgni.

7Ég uggði ekki að mér og sagði:

„Aldrei skriðnar mér fótur.“

8Drottinn, af náð þinni gerðir þú fjall mitt að vígi

en þegar þú huldir auglit þitt skelfdist ég.

9Til þín, Drottinn, hrópaði ég

og ákallaði Guð minn um miskunn:

10„Hvaða ávinningur er af dauða mínum,

af því að ég gangi til grafar?

Getur duftið lofað þig,

kunngjört trúfesti þína?

11Heyr, Drottinn, ver mér náðugur,

Drottinn, kom mér til hjálpar.“

12Þú breyttir gráti mínum í gleðidans,

leystir af mér hærusekkinn

og gyrtir mig fögnuði,

13því vil ég syngja þér lof

og eigi þagna.

Drottinn, Guð minn, ég vil þakka þér að eilífu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help