Sálmarnir 78 - Biblían (2007)

1Asafsmaskíl.

Hlýð þú, þjóð mín, á kenningu mína,

legg eyrun að ræðu munns míns.

2Ég vil opna munn minn með líkingu

og túlka liðna tíð.

3Það sem vér höfum heyrt og þekkjum

og feður vorir sögðu oss frá

4ætlum vér ekki að dylja fyrir börnum þeirra

heldur segja komandi kynslóð

frá dáðum Drottins og mætti hans

og máttarverkunum sem hann vann.

5Hann setti Jakobi reglur

og lögmál í Ísrael

sem hann bauð feðrum vorum

að kenna börnum sínum

6svo að komandi kynslóð nemi

og börn, sem síðar fæðast,

gangi fram og segi sínum börnum.

7Þau setji traust sitt á Guð,

gleymi ekki stórvirkjum Guðs

og varðveiti boðorð hans

8en verði ekki eins og feður þeirra,

þrjósk og ódæl kynslóð,

reikul í ráði

með anda ótrúan Guði.

9Niðjar Efraíms, vopnaðir boga,

flýðu á orrustudeginum.

10Þeir héldu ekki sáttmála Guðs

og vildu ekki fylgja lögum hans,

11gleymdu stórvirkjum Drottins

og máttarverkunum sem hann lét þá sjá.

12Hann drýgði dáðir í augsýn feðra þeirra

í Egyptalandi, á Sóanvöllum.

13Hann klauf hafið og leiddi þá yfir

og lét vatnið standa sem vegg.

14Hann leiddi þá með skýi um daga

og um nætur með lýsandi eldi.

15Hann klauf kletta í auðninni

og gaf þeim gnægð vatns eins og úr frumdjúpinu.

16Hann lét læki spretta úr kletti,

vatnið streyma niður sem fljót.

17Þó héldu þeir áfram að syndga gegn honum,

rísa í eyðimörkinni gegn Hinum hæsta.

18Þeir freistuðu Guðs af ásetningi

með því að heimta mat að vild sinni.

19Þeir mæltu gegn Guði og sögðu:

„Getur Guð búið borð í eyðimörkinni?

20Víst laust hann klett svo að vatn flæddi út

og lækir spruttu fram

en getur hann einnig gefið oss brauð

og séð lýð sínum fyrir kjöti?“

21Drottinn heyrði þetta og reiddist,

eldur blossaði upp gegn Jakobi

og reiði brann gegn Ísrael

22því að þeir trúðu ekki Guði

eða treystu hjálp hans.

23Þá bauð hann skýjunum í hæðum

og opnaði dyr himins,

24lét manna rigna yfir þá til matar

og gaf þeim himnakorn,

25englabrauð fengu menn að eta,

hann sendi þeim fæðu og þeir urðu mettir.

26Hann lét austanvindinn blása af himnum

og knúði sunnanvindinn með mætti sínum.

27Hann lét kjöti rigna yfir þá sem dufti

og mergð fugla eins og sandi á sjávarströnd.

28Hann lét þá falla niður í búðir sínar

umhverfis bústað sinn.

29Þeir átu og urðu vel saddir,

hann sendi þeim það sem þeir girntust.

30Áður en græðgin hvarf þeim,

meðan maturinn var enn í munni þeirra,

31reis heift Guðs gegn þeim

og hann deyddi valdamenn þeirra,

felldi æskumenn Ísraels.

32Þrátt fyrir allt þetta héldu þeir áfram að syndga gegn honum

og trúðu ekki á máttarverk hans.

33Hann lét því daga þeirra hverfa eins og andgust,

ár þeirra enda í skelfingu.

34Þegar hann laust þá leituðu þeir hans,

iðruðust og sneru sér til Guðs,

35minntust þess að Guð var klettur þeirra

og Hinn hæsti Guð frelsari þeirra.

36Í munni þeirra var hræsni,

með tungu sinni lugu þeir að honum.

37Hjarta þeirra var ekki stöðugt gagnvart honum

og þeir reyndust ótrúir sáttmála hans.

38En hann er miskunnsamur, fyrirgefur misgjörðir

og eyðir þeim ekki.

Oft stillir hann reiði sína,

heldur aftur af bræði sinni.

39Hann minntist þess að þeir voru hold,

andgustur sem líður burt og snýr ekki aftur.

40Hve oft risu þeir ekki gegn honum í auðninni,

styggðu hann í eyðimörkinni?

41Þeir reyndu Guð hvað eftir annað

og vanvirtu Hinn heilaga í Ísrael.

42Þeir minntust ekki handar hans,

dagsins sem hann frelsaði þá frá óvininum,

43þegar hann gerði tákn sín í Egyptalandi

og undur sín á Sóanvöllum.

44Hann breytti fljótum þeirra í blóð

og þeir gátu ekki drukkið vatn úr lækjum sínum.

45Hann sendi flugur gegn þeim sem átu þá

og froska sem eyddu þeim.

46Hann gaf átvargi afurðir þeirra

og engisprettum uppskeru þeirra.

47Hann eyddi vínvið þeirra með hagli

og mórberjatré þeirra með frosti.

48Hann ofurseldi fé þeirra drepsótt

og hjarðir þeirra sjúkdómum.

49Hann sendi logandi heift sína gegn þeim,

harm, bræði og nauðir,

sveitir illra sendiboða.

50Hann gaf reiðinni lausan taum,

þyrmdi ekki lífi þeirra

heldur ofurseldi þá drepsótt.

51Hann laust alla frumburði í Egyptalandi,

frumgróða karlmennskunnar

í tjöldum Kams.

52Því næst hélt hann af stað með þjóð sína eins og fjársafn,

leiddi hana eins og hjörð um eyðimörkina.

53Hann leiddi þá óhulta og óttalausa

en óvini þeirra huldi hafið.

54Síðan fór hann með þá til síns heilaga lands,

til fjalllendisins sem hægri hönd hans hafði unnið,

55stökkti þjóðum undan þeim,

skipti landi þeirra í erfðalönd með hlutkesti,

lét ættbálka Ísraels setjast að í tjöldum þeirra.

56En þeir freistuðu Hins hæsta Guðs, risu gegn honum

og héldu ekki lög hans,

57sviku hann í tryggðum eins og feður þeirra,

brugðust eins og svikull bogi.

58Þeir reittu hann til reiði með fórnarhæðum sínum,

vöktu afbrýði hans með skurðgoðum sínum.

59Guð heyrði það og reiddist

og hafnaði Ísrael að fullu.

60Hann yfirgaf bústaðinn í Síló,

tjaldið sem hann bjó í meðal manna.

61Hann lét herleiða mátt sinn,

seldi dýrð sína í hendur fjandmönnum.

62Hann ofurseldi lýð sinn sverðseggjum,

reiddist arfleifð sinni.

63Æskumenn hans gleypti eldurinn,

meyjar hans urðu af brúðkaupssöngvum,

64prestar hans féllu fyrir sverði

og ekkjur hans fengu ekki harmljóð flutt.

65Þá vaknaði Drottinn eins og af svefni,

eins og bardagamaður sem vaknar af ölvímu.

66Hann rak fjandmenn sína á flótta,

gerði þeim ævarandi háðung.

67Hann hafnaði tjaldi Jósefs,

kaus sér eigi ættbálk Efraíms

68en valdi sér Júda ætt,

Síonarfjall sem hann elskaði.

69Hann reisti helgidóm sinn sem himinhæðir,

grundvallaði hann að eilífu eins og jörðina.

70Síðan útvaldi hann þjón sinn, Davíð,

sótti hann í fjárbyrgin.

71Hann tók hann frá lambánum

til þess að vera hirðir fyrir Jakob, lýð sinn,

og arfleifð sína, Ísrael.

72Davíð var hirðir þeirra af heilum hug,

leiddi þá með hygginni hendi.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help