Sálmarnir 81 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Á gittít. Asafssálmur.

2Gleðjist fyrir Guði sem er styrkur vor,

fagnið fyrir Jakobs Guði.

3Hefjið lofsöng og berjið bumbur,

knýið kliðmjúka lútu og hörpu.

4Þeytið hafurshorn með nýju tungli,

við tunglfylling á hátíðisdegi vorum.

5Því að þetta eru lög fyrir Ísrael,

fyrirmæli frá Jakobs Guði.

6Hann gerði það að reglu fyrir Jósef

þegar hann hélt gegn Egyptalandi.

Ég heyri mál sem ég þekki ekki:

7„Ég létti byrðinni af herðum hans

og losaði hendur hans við burðarkörfuna.

8Þú kallaðir í neyðinni,

ég bjargaði þér,

ég bænheyrði þig í þrumuskýi

og reyndi þig við Meríbavötn. (Sela)

9Heyr, lýður minn, að ég megi vara þig við,

Ísrael, að þú vildir hlusta.

10Enginn framandi guð má vera hjá þér.

Engan útlendan guð máttu tilbiðja.

11Ég er Drottinn, Guð þinn,

sem leiddi þig út af Egyptalandi.

Opna munn þinn, að ég megi seðja þig.

12En lýður minn hlustaði ekki á mig

og Ísrael hlýddi mér ekki.

13Þá sleppti ég þeim, forhertum í hjarta,

þeir fengu að fara að eigin geðþótta.

14Ó, að lýður minn hlustaði á mig,

Ísrael gengi á vegum mínum.

15Þá mundi ég skjótt lægja óvini þeirra

og snúa hendi minni gegn fjendum þeirra.

16Þeir sem hata Drottin mundu hræsna fyrir honum

og svo yrði um aldur og ævi.

17Þér gæfi ég kjarnbesta hveiti að eta

og seddi þig á hunangi úr klettum.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help