1Um nóttina fór Gorgías úr herbúðum sínum og hafði með sér fimm þúsund manns og eitt þúsund úrvalsriddara.
2Ætlaði hann að ráðast að óvörum á herbúðir Gyðinga og sigra þá. Menn úr virkinu sögðu honum til vegar.
3Júdas varð þessa áskynja og tók sig upp með úrvalslið sitt til að sigra þann her konungsins sem var í Emmaus
4meðan hluti hans var fjarri herbúðunum.
5Þegar Gorgías kom í herbúðir Júdasar um nóttina greip hann í tómt. Tók hann að leita manna Júdasar í fjöllunum því að hann taldi að þeir hefðu flúið undan sér þangað.
6Þegar dagaði birtist Júdas á sléttunni með þrjú þúsund manns. Ekki voru þeir svo búnir skjöldum og sverðum sem þeir vildu.
7Þeir sáu að her heiðingjanna var voldugur og vel vopnum búinn sem og riddaraliðið umhverfis hann, allt þjálfaðir bardagamenn.
8Þá sagði Júdas við menn sína: „Óttist ekki fjölda þeirra og hræðist ekki árás þeirra.
9Minnist þess hvernig feður okkar björguðust í Rauðahafinu þegar her faraós elti þá.
10Nú skulum við hrópa til himins að hann verði okkur náðugur og minnist sáttmálans við feður okkar. Mun hann þá eyða þessum her fyrir augum okkar í dag.
11Af því munu allir heiðingjar komast að raun um að sá er til sem frelsar og bjargar Ísrael.“
12Er óvinirnir sáu þá stefna gegn sér
13héldu þeir út úr herbúðunum til að berjast. Þá þeyttu menn Júdasar herlúðra
14og herjunum laust saman. Voru heiðingjarnir gjörsigraðir og flýðu út á sléttuna.
15Féllu þeir sem síðastir fóru allir fyrir sverði. Ísraelsmenn ráku flóttann til Geser og út á sléttur Ídúmeu, Asdód og Jabne og felldu um þrjár þúsundir óvinanna.
16Þegar Júdas og her hans sneru aftur frá eftirförinni
17sagði Júdas við fólkið: „Látið herfangið ekki freista ykkar um of því að enn eigum við orrustu fyrir höndum.
18Gorgías og her hans eru ekki langt undan í fjöllunum. Nú verðið þið að veita óvinum okkar mótspyrnu og berjast við þá. Síðan getið þið tekið af herfanginu án þess að óttast neitt.“
19Varla hafði Júdas sleppt orðinu þegar sást til flokks óvinanna hjá fjallinu.
20Við flokknum blasti að herinn var sigraður og að herbúðirnar höfðu verið lagðar eldi enda bar reykurinn því ljósan vott sem orðið var.
21Við þessa sýn urðu þeir mjög óttaslegnir og þegar þar við bættist að her Júdasar birtist fylktur til bardaga á sléttunni
22flýðu þeir allir til lands Filistea.
23Þá sneri Júdas aftur til að ræna herbúðirnar. Tók hann þar mikið gull og silfur, blá og rauð purpuraklæði og margt gersema.
24Sneru hann og liðsmenn hans síðan heim og sungu sálma og himninum lof eins og maklegt er því að miskunn hans varir að eilífu.
25Þennan dag hlaut Ísrael dásamlega frelsun.
Júdas sigrar Lýsías við Bet Súr26Þeir útlendinganna sem af komust fóru til Lýsíasar og greindu honum frá öllu því sem gerst hafði.
27Brá honum mjög við tíðindin, sem honum féllu þungt, og það að ekki hafði farið svo fyrir Ísrael sem hann vildi og honum mistekist að framkvæma fyrirmæli konungs.
28Árið eftir kvaddi Lýsías til sextíu þúsund úrvalshermenn og fimm þúsund riddara til að leggja Ísrael að velli.
29Héldu þeir inn í Ídúmeu og slógu upp herbúðum við Bet Súr en Júdas hélt gegn þeim með tíu þúsund manns.
30Þegar hann sá hve voldugur herinn var baðst hann fyrir með þessum orðum: „Lofaður sért þú, frelsari Ísraels, sem gerðir árás risans að engu með hendi þjóns þíns, Davíðs, og gafst her Filistea á vald Jónatan, syni Sáls, og skjaldsveini hans.
31Gef þú nú her þennan lýð þínum, Ísrael, á vald svo að liðstyrkur óvinanna og riddarar þeirra verði til skammar.
32Lát þá missa móðinn, lama ofdirfsku þeirra svo að skjálfandi bíði þeir ósigur.
33Felldu þá með sverði þeirra sem unna þér svo að allir, sem þekkja nafn þitt, megi syngja þér lofsöng.“
34Laust herjunum nú saman og féllu um fimm þúsund af herliði Lýsíasar fyrir árás Ísraelsmanna.
35Þegar Lýsías sá að flótti var brostinn í lið hans en liðsmönnum Júdasar jókst kjarkur og hve staðráðnir þeir voru í að lifa og deyja með sæmd hélt hann til baka til Antíokkíu. Réð hann síðan málaliða til að geta snúið aftur til Júdeu með enn öflugri her.
Hreinsun musterisins36En Júdas og bræður hans sögðu: „Óvinir okkar eru sigraðir. Við skulum halda upp til Jerúsalem og hreinsa helgidóminn og vígja hann að nýju.“
37Allur herinn safnaðist saman og gekk upp á Síonfjall.
38Þar fundu þeir helgidóminn yfirgefinn og fórnaraltarið saurgað og hliðin brennd. Kjarr var vaxið upp í forgörðunum svo að þeir voru líkastir skóglendi eða fjalllendi og hliðarherbergi prestanna höfðu verið rifin.
39Menn Júdasar rifu klæði sín, kveinuðu harmi lostnir, jusu sig ösku
40og féllu til jarðar fram á ásjónur sínar. Síðan þeyttu þeir merkilúðrana og hrópuðu til himins.
41Þá bauð Júdas nokkrum manna sinna að herja á liðið í virkinu meðan hann hreinsaði helgidóminn.
42Hann valdi presta sem eigi höfðu látið flekkast og unnu lögmálinu.
43Hreinsuðu þeir helgidóminn og fluttu saurguðu steinana á óhreinan stað.
44Þeir ráðguðust um hvað gert skyldi við brennifórnaraltarið sem svívirt var.
45Hugkvæmdist þeim það heillaráð að rífa það svo að það minnti ekki framar á þá smán að heiðingjar höfðu saurgað það.
Þeir rifu því fórnaraltarið niður
46og komu steinunum fyrir á hentugum stað á musterisfjallinu þar til spámaður kæmi sem gæti svarað því hvað gert skyldi við þá.
47Tóku þeir síðan óhöggna steina eins og lögmálið segir til um og hlóðu nýtt altari sem var eins og hið fyrra.
48Helgidóminn endurbættu þeir að utan sem innan og vígðu forgarðana.
49Þeir gerðu ný helgiáhöld og báru ljósastikuna, reykelsisaltarið og borðið inn í musterið.
50Þeir brenndu síðan reykelsi á reykelsisaltarinu og tendruðu lampana á ljósastikunni svo að birti í musterinu.
51Þeir lögðu brauð á borðið og hengdu fortjaldið upp.
Þá var öllu lokið sem gera þurfti.
52Þeir fóru árla á fætur. Var það tuttugasta og fimmta dag níunda mánaðar, þ.e. kíslevmánaðar, árið eitt hundrað fjörutíu og átta.
53Báru prestarnir fram fórn samkvæmt lögmálinu á nýja brennifórnaraltarið sem þeir höfðu reist.
54Á sama tíma árs og á sama degi og heiðingjarnir svívirtu helgidóminn var hann endurvígður með söng og leik á hörpu, gígjur og bumbur.
55Og fólkið allt féll fram á ásjónu sína og tilbað og lofaði himininn sem hafði veitt því sigursæld.
56Vígslu fórnaraltarisins héldu menn hátíðlega í átta daga, báru brennifórnir fram fagnandi huga og færðu heillafórn og þakkarfórn.
57Þeir prýddu framhlið musterisins með gullsveigum og skjöldum, endurnýjuðu hliðin og hliðarherbergi prestanna og settu hurðir fyrir.
58Gífurlegur fögnuður ríkti meðal fólksins yfir að smánin, sem heiðingjarnir ollu, var afmáð.
59Ákvað Júdas og bræður hans og allur söfnuður Ísraels að árlega skyldi endurvígslu fórnaraltarisins minnst með hátíð og fögnuði og gleði í átta daga frá tuttugasta og fimmta degi kíslevmánaðar.
60Um þessar mundir reistu þeir háa múra með sterkum turnum umhverfis Síonfjall til að koma í veg fyrir að heiðingjarnir kæmu á ný og saurguðu svæðið eins og áður.
61Þar setti Júdas lið til varnar staðnum og víggirti einnig Bet Súr svo að þjóðin hefði þar virki gegnt Ídúmeu.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.