Sálmarnir 143 - Biblían (2007)

1Davíðssálmur.

Drottinn, heyr þú bæn mína,

ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni,

bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Leið þjón þinn ekki fyrir rétt

því að enginn sem lifir er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinur ofsækir mig.

Hann traðkar líf mitt niður,

lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Kjarkurinn bregst mér,

hjartað stöðvast í brjósti mér.

5Ég minnist fornra daga,

hugleiði allar gjörðir þínar,

ígrunda verk handa þinna.

6Ég lyfti upp höndum mínum til þín,

mig þyrstir eftir þér eins og örfoka land. (Sela)

7Bænheyr mig fljótt, Drottinn,

því að lífsþróttur minn þverr.

Byrg eigi auglit þitt fyrir mér

svo ég líkist eigi þeim sem grafnir eru.

8Lát mig heyra miskunn þína að morgni dags

því að þér treysti ég.

Vísa mér veginn sem ég skal halda

því að til þín hef ég sál mína.

9Bjarga mér frá óvinum mínum, Drottinn,

ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gera vilja þinn

því að þú ert Guð minn,

þinn góði andi leiði mig

um slétta braut.

11Leyf mér að lifa sakir nafns þíns, Drottinn,

leið mig úr nauðum sakir réttlætis þíns.

12Lát óvini mína hverfa sakir trúfesti þinnar,

tortím öllum sem ógna lífi mínu

því að ég er þjónn þinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help