Jobsbók 19 - Biblían (2007)

Svar Jobs

1Job svaraði og sagði:

2Hversu lengi ætlið þér að angra mig

og brjóta mig niður með orðum?

3Nú hafið þér smánað mig tíu sinnum,

þér skammist yðar ekki fyrir að misbjóða mér.

4Hafi mér í raun orðið eitthvað á

þá varðar misgjörð mín mig einan.

5Ef þér ætlið í raun og veru að upphefja sjálfa yður

með því að sýna fram á smán mína

6skuluð þér játa að Guð lítillækkaði mig

þar sem hann kastaði yfir mig neti sínu.

7Hrópi ég „ofbeldi“ er mér ekki svarað,

kalli ég á hjálp er enga réttvísi að finna.

8Hann lokaði vegi mínum svo að ég komst ekki áfram

og myrkvaði leiðir mínar.

9Hann svipti mig heiðri mínum,

tók kórónuna af höfði mér.

10Hann braut mig algjörlega niður

og upprætti von mína eins og tré.

11Heift hans brann gegn mér

og hann taldi mig í hópi óvina sinna.

12Herskarar hans komu saman,

ruddu sér braut til mín

og slógu upp búðum umhverfis tjald mitt.

13Hann gerði bræður mína fráhverfa mér

og kunningjar mínir urðu mér frábitnir.

14Skyldmenni mín og kunningjar yfirgáfu mig,

15skjólstæðingar fjölskyldu minnar gleymdu mér

og þjónustustúlkum mínum fannst ég framandi,

ég varð sem ókunnugur í augum þeirra.

16Þegar ég kallaði á vinnumann minn svaraði hann ekki,

ég varð að biðja hann sjálfur.

17Kona mín þolir ekki andardrátt minn

og sonum móður minnar finnst ólykt af mér.

18Jafnvel börn fyrirlíta mig.

Þegar ég rís upp andmæla þau mér.

19Trúnaðarvinir mínir forðast mig

og þeir sem mér þykir vænt um snúast gegn mér.

20Bein mín límast við húð mína og hörund.

Ég held þó lífi með naumindum.

21Aumkið mig, aumkið mig, vinir mínir,

því að hönd Guðs hefur snert mig.

22Hvers vegna ofsækið þér mig eins og Guð

og verðið ekki mettir af holdi mínu?

23Ég vildi að ummæli mín yrðu skráð,

ég vildi að þau yrðu meitluð sem áletrun

24með járnmeitli og blýi,

höggvin í klett um aldur og ævi.

25Ég veit að lausnari minn lifir

og hann mun síðastur ganga fram á foldu.

26Eftir að þessi húð mín er sundurtætt

og allt hold er af mér mun ég líta Guð.

27Ég mun líta hann mér til góðs,

augu mín munu sjá hann og engan annan.

Hjartað brennur af þrá í brjósti mér.

28Ef þér segið: „Vér skulum ofsækja hann

og finna rót ógæfunnar hjá honum,“

29skuluð þér óttast sverðið

því að fyrir slík brot er refsað með sverði

svo að þér skiljið að dómur er til.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help