Sálmarnir 137 - Biblían (2007)

1Við Babýlonsfljót sátum vér og grétum

er vér minntumst Síonar.

2Á pílviðina þar hengdum vér upp gígjur vorar

3því að þar heimtuðu verðir vorir söngljóð

og kúgarar vorir kæti:

„Syngið oss Síonarljóð.“

4Hvernig gætum vér sungið Drottins ljóð

í framandi landi?

5Ef ég gleymi þér, Jerúsalem,

þá visni hægri hönd mín.

6Tungan loði mér við góm

hugsi ég ekki til þín,

ef Jerúsalem er eigi allra besta yndið mitt.

7Drottinn, mundu Edóms niðjum

dag Jerúsalem,

daginn þegar þeir sögðu:

„Rífið niður, rífið hana niður, allt til grunna.“

8Babýlonsdóttir, þú sem tortímir.

Heill þeim sem geldur þér

það sem þú gerðir oss.

9Heill þeim sem þrífur brjóstmylkinga þína

og slær þeim niður við stein.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help