Síraksbók 18 - Biblían (2007)

Dýrð Guðs

1Sá sem lifir að eilífu skapaði allt í heimi.

2Drottinn einn er réttlátur.

Enginn er Guð nema hann einn.

3Hann stjórnar veröldinni með hendi sinni

og allt verður að lúta vilja hans.

Hann ríkir í mætti sínum yfir öllu sem er

og greinir heilagt frá vanhelgu.

4Engum lét hann auðnast að útskýra verk sín,

hver getur rannsakað dásemdarverk hans til hlítar?

5Hver má mæla hve máttur hans er mikill?

Hver getur lýst miskunnarverkum hans að fullu?

6Hvorki verður úr þeim dregið né við þau bætt,

enginn kannar til hlítar dásemdir Drottins.

7Þegar maðurinn ætlar sig hafa lokið því

þá er hann rétt að byrja,

þegar hann hættir veit hann vart sitt rjúkandi ráð.

Smæð manns

8Hvað er maðurinn og til hvers er hann nýtur?

Hið góða eða illa sem hann gerir, hvað er það?

9Allir ævidagar mannsins

eru í hæsta lagi hundrað ár.

10Líkt og dropi í hafið, sandkorn eitt,

eru þau fáu ár miðað við eilífð.

11Þess vegna er Drottinn þolinmóður mönnum

og auðsýnir þeim miskunn.

12Hann sér og veit að endalok þeirra eru ill,

því er hann fús að fyrirgefa mikið.

13Miskunn manns nær til náunga hans

en miskunn Drottins til allra manna.

Hann leiðbeinir, agar og fræðir,

leiðir hjörð sína heim eins og hirðir.

14Hann er miskunnsamur þeim sem hlýðir umvöndun

og þeim sem láta sér annt um boðorð hans.

Góðvild og kærleiksverk

15Barnið mitt, láttu ekki skammir fylgja góðverki,

særðu ei þann sem þiggur gjöf þína.

16Eins og dögg svalar í sólarhita

taka vingjarnleg orð gjöfinni fram.

17Er orð ekki betra en góð gjöf?

Hvort tveggja fylgist að hjá göfuglyndum manni.

18Heimskur maður lastar um leið og hann gefur,

gjöf nirfils slekkur gleðiblik í auga.

Um sjálfsskoðun

19Afla þér þekkingar áður en þú talar,

hygg að heilsunni áður en þú veikist.

20Rannsaka sjálfan þig áður en til dóms kemur,

þá mun þér fyrirgefið á vitjunartíma.

21Auðmýk þig áður en heilsan bregst þér,

auðsýn iðrun um leið og þú syndgar.

22Lát ekkert hindra þig í að halda heit þín í tíma,

fresta eigi til dánardægurs að uppfylla þau.

23Áður en þú strengir heit skaltu hugsa þitt ráð,

ver eigi líkur þeim manni sem freistar Drottins.

24Minnstu reiðinnar sem kemur við endi daga,

stund hegningarinnar er Drottinn snýr ásjónu sinni frá þér.

25Minnstu hungursneyðar á nægtatíma,

fátæktar og skorts á auðsældardögum.

26Margt getur breyst frá morgni til kvölds,

fyrir Drottni er allt á fleygiferð.

27Vitur maður gætir varúðar í öllu

og forðast sekt á syndatíð.

28Sérhver skynsamur maður getur þekkt spekina

og lofar þann sem finnur hana.

29Þeir sem iðka fræðin verða sjálfir vitrir,

frá þeim streyma hnitmiðuð spakmæli.

Um sjálfsstjórn

30Láttu ekki teymast af fýsnum þínum

og hafðu taumhald á girndum þínum.

31Leyfir þú sál þinni að seðjast af nautnum

verður þú athlægi óvina þinna.

32Leita ei gleði í óhófslífi,

það kann að leiða örbirgð yfir þig.

33Ger þig ei snauðan með veislum fyrir lánsfé

er þú sjálfur átt ekkert í pyngju þinni.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help