1Davíðssálmur.
Ver eigi bráður þeim sem illt vinna,
öfunda eigi þá sem ranglæti fremja
2því að þeir fölna skjótt sem grasið,
visna sem grænar jurtir.
3Treyst Drottni og ger gott,
þá muntu óhultur búa í landinu.
4Njót gleði í Drottni,
þá veitir hann þér það sem hjarta þitt þráir.
5Fel Drottni vegu þína og treyst honum,
hann mun vel fyrir sjá.
6Hann mun láta réttlæti þitt renna upp sem ljós
og rétt þinn sem hábjartan dag.
7Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann,
ver eigi of bráður vegna þess manns sem vel gengur
eða þess sem illu veldur.
8Lát af reiði, slepp heiftinni,
ver eigi of bráður, það leiðir til ills eins.
9Því að illvirkjum verður tortímt
en þeir sem vona á Drottin fá landið til eignar.
10Innan stundar er hinn óguðlegi horfinn,
ef þú leitar hans er hann ekki að finna.
11En hinir hógværu fá landið til eignar
og gleðjast yfir miklu gengi.
12Hinn óguðlegi bruggar réttlátum vélráð
og gnístir tönnum gegn honum.
13Drottinn hlær að honum
því að hann sér að dagur hans kemur.
14Óguðlegir bregða sverði og spenna boga sína
til þess að fella hinn umkomulausa og snauða,
til þess að deyða hina ráðvöndu.
15En sverð þeirra munu rista þeirra eigin hjörtu
og bogar þeirra munu brotnir verða.
16Betri er lítil eign réttláts manns
en auðlegð margra óguðlegra
17því að armur óguðlegra mun brotinn
en réttláta styður Drottinn.
18Drottinn hefur gætur á dögum flekklausra
og arfleifð þeirra varir að eilífu.
19Á vondum tímum verða þeir ekki til skammar,
í hallæri hljóta þeir saðning.
20En hinir óguðlegu munu farast.
Óvinir Drottins eru sem blóm á engi,
þeir hverfa, eins og reykur hverfa þeir.
21Guðlaus maður tekur lán og borgar ekki
en réttlátur maður er mildur og örlátur.
22Þeir sem Drottinn blessar fá landið til eignar
en hinum bannfærðu verður tortímt.
23Drottinn stýrir skrefum mannsins
þegar hann hefur þóknun á vegferð hans.
24Þó að hann hrasi fellur hann ekki flatur
því að Drottinn heldur í hönd hans.
25Ungur var ég og gamall er ég orðinn
en aldrei sá ég réttlátan mann yfirgefinn
eða niðja hans biðja sér matar.
26Ætíð er hann mildur og fús til að lána
og niðjar hans verða öðrum til blessunar.
27Forðastu illt en ger gott,
þá muntu eiga bústað um aldur
28því að Drottinn hefur mætur á réttlæti
og yfirgefur eigi sína trúuðu.
Þeir verða að eilífu varðveittir
en niðjar óguðlegra upprættir.
29Réttlátir fá landið til eignar
og búa þar ævinlega.
30Munnur hins réttláta mælir speki
og tunga hans boðar réttlæti.
31Lögmál Guðs hans er í hjarta hans,
eigi skriðnar honum fótur.
32Guðlaus maður situr um réttlátan
og sækist eftir lífi hans.
33En Drottinn ofurselur hann ekki
og lætur hann ekki ganga sekan frá dómi.
34Vona á Drottin og gef gætur að vegi hans,
hann mun hefja þig upp, að þú erfir landið,
og þú munt sjá guðleysingjum tortímt.
35Ég hef séð óguðlegan ofstopamann
breiða úr sér sem laufmikið tré í gróðurreit sínum.
36Ég gekk þar hjá, og sjá, hann var þar ekki framar,
ég leitaði hans en hann var hvergi að finna.
37Gef gætur að hinum ráðvanda og horfðu til hins grandvara
því að friðsamir menn eiga framtíðina fyrir sér
38en allir syndarar farast,
óguðlegir eiga sér enga framtíð.
39Hjálp réttlátra kemur frá Drottni,
hann er hæli þeirra á neyðartímum.
40Drottinn liðsinnir þeim og bjargar,
frelsar þá frá óguðlegum og bjargar þeim
því að þeir leituðu athvarfs hjá honum.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.