Fyrri kroníkubók 6 - Biblían (2007)

Niðjatal sona Leví

1Synir Leví voru Gersom, Kahat og Merarí.

2Og þetta eru nöfn sona Gersoms: Lební og Símeí.

3Og synir Kahats voru Amram og Jísehar og Hebron og Ússíel.

4Synir Merarí voru Mahelí og Músí.

Þetta eru ættir Levíta, taldar frá ættfeðrum þeirra.

5Frá Gersom: Libní, sonur hans, Jahat, sonur hans, Simma, sonur hans,

6Jóa, sonur hans, Íddó, sonur hans, Sera, sonur hans, og Jeatraí, sonur hans.

7Synir Kahats voru Ammínadab, sonur hans, Kóra, sonur hans, Assír, sonur hans,

8Elkana, sonur hans, Ebjasaf, sonur hans, Assír, sonur hans,

9Tahat, sonur hans, Úríel, sonur hans, Ússía, sonur hans, og Sál, sonur hans.

10Og synir Elkana voru Amasaí og Ahímót,

11Elkana, sonur hans, Sofaí, sonur hans, Nahat, sonur hans,

12Elíab, sonur hans, Jeróham, sonur hans, Elkana, sonur hans, og Samúel, sonur hans.

13Og synir Samúels voru Jóel, frumburðurinn, og Abía, næstur honum.

14Synir Merarí voru Mahlí, Libní, sonur hans, Simeí, sonur hans, Ússa, sonur hans,

15Símea, sonur hans, Haggía, sonur hans, og Asaja, sonur hans.

Ættir söngvaranna í musterinu

16Þetta eru þeir menn sem Davíð setti til að stjórna söng í húsi Drottins þegar örkinni hafði verið búinn þar staður.

17Þeir höfðu gegnt þjónustu með söng fyrir framan bústað Drottins í samfundatjaldinu þar til Salómon reisti Drottni hús í Jerúsalem. Gegndu þeir þjónustu sinni samkvæmt þeim reglum sem þeim voru settar.

18Þeir sem gegndu þessari þjónustu ásamt sonum sínum voru:

Af sonum Kahatíta: söngvarinn Heman Jóelsson, Samúelssonar,

19Elkanasonar, Jeróhamssonar, Elíelssonar, Tóasonar,

20Súfssonar, Elkanasonar, Mahatssonar, Amasaísonar,

21Elkanasonar, Jóelssonar, Asaríasonar, Sefaníasonar,

22Tahatssonar, Assírssonar, Ebjasafssonar, Kórasonar,

23Jíseharssonar, Kahatssonar, Levísonar, Ísraelssonar.

24Bróðir hans var Asaf sem stóð honum til hægri handar, Asaf Berekíason, Símeasonar,

25Mikaelssonar, Maasejasonar, Malkíasonar,

26Etnísonar, Serasonar, Adajasonar,

27Etanssonar, Simmasonar, Símmeísonar,

28Jahatssonar, Gersomssonar, Levísonar.

29Af sonum Merarí, bræðrum þeirra, stóðu honum til vinstri handar: Etan Kísíson, Abdísonar, Mallúkssonar,

30Hasabjasonar, Amasjasonar, Hilkíasonar,

31Amsísonar, Banísonar, Semerssonar,

32Mahelísonar, Músísonar, Merarísonar, Levísonar.

33Og bræðrum þeirra, Levítunum, var ætluð öll þjónusta í bústað Drottins í húsi Guðs.

34En Aron og synir hans færðu fórnir á brennifórnaraltarinu og reykelsisaltarinu. Þeir gegndu allri þjónustu í hinu allra helgasta og friðþægðu fyrir Ísrael að öllu leyti eins og Móse, þjónn Guðs, hafði lagt fyrir.

Niðjatal Arons

35Þetta voru synir Arons: sonur hans Eleasar, sonur hans Pínehas, sonur hans Abísúa,

36sonur hans Búkkí, sonur hans Ússí, sonur hans Serahja,

37sonur hans Merajót, sonur hans Amaría, sonur hans Ahítúb,

38sonur hans Sadók og sonur hans Akímaas.

Borgir Levíta

39-40 Dvalarstaðir Levíta, taldir eftir afgirtum tjaldbúðum á landsvæði þeirra, voru:

Sonum Arons af ætt Kahatíta fengu þeir Hebron í landi Júda ásamt beitilandinu umhverfis því að fyrsti hluturinn féll á þá.

41En akurland borgarinnar ásamt þorpunum, sem henni heyrðu til, fengu þeir Kaleb Jefúnnesyni.

42Þeir fengu sonum Arons griðaborgina Hebron, enn fremur Líbna ásamt beitilöndum, Jattír og Estamóa ásamt beitilöndum

43og Hólon ásamt beitilöndum og Debír ásamt beitilöndum

44og Asan ásamt beitilöndum og Bet Semes ásamt beitilöndum.

45Frá ættbálki Benjamíns fengu þeir þeim Geba ásamt beitilöndum og Allemet ásamt beitilöndum og Anatót ásamt beitilöndum. Alls voru borgir þeirra þrettán ásamt beitilöndum.

46Aðrar ættir sona Kahats hlutu tíu borgir með hlutkesti frá ættum Efraímsættbálks og Dansættbálks og hálfum Manasseættbálki.

47Ættir sona Gersoms hlutu þrettán borgir með hlutkesti frá ættbálki Íssakars og ættbálki Assers og ættbálki Naftalí og hálfum ættbálki Manasse í Basan.

48Ættir sona Merarí hlutu tólf borgir með hlutkesti frá ættbálki Rúbens og ættbálki Gaðs og ættbálki Sebúlons.

49Ísraelsmenn fengu Levítunum þessar borgir ásamt beitilöndum þeirra.

50Þeir létu þær af hendi með hlutkesti. Synir Arons fengu þessar borgir, sem nefndar hafa verið, með hlutkesti frá ættbálki sona Júda og ættbálki sona Símeons og ættbálki sona Benjamíns.

51Ættir þeirra sona Kahats, sem voru Levítar, fengu þessar borgir frá ættbálki Efraíms:

52Þeim var fengin griðaborgin Síkem ásamt beitilöndum hennar á Efraímsfjöllum og Geser ásamt beitilöndum

53og Jokmeam ásamt beitilöndum og Bet Hóron ásamt beitilöndum

54og Ajalon ásamt beitilöndum og Gat Rimmon ásamt beitilöndum.

55Og frá hálfum ættbálki Manasse fengu þeir Aner ásamt beitilöndum og Jíbleam ásamt beitilöndum. Þessar borgir hlutu ættir annarra sona Kahats.

56Synir Gersoms fengu frá ættunum í hálfum Manasseættbálki: Gólan í Basan ásamt beitilöndum og Astarót ásamt beitilöndum.

57Og frá ættbálki Íssakars fengu þeir Kedes ásamt beitilöndum og Dabrat ásamt beitilöndum

58og Ramót ásamt beitilöndum og Anem ásamt beitilöndum.

59Og frá ættbálki Assers fengu þeir Masal ásamt beitilöndum og Abdón ásamt beitilöndum

60og Húkok ásamt beitilöndum og Rehób ásamt beitilöndum.

61Og frá ættbálki Naftalí fengu þeir Kedes í Galíleu ásamt beitilöndum og Hammót ásamt beitilöndum og Kirjataím ásamt beitilöndum.

62Synir Merarí, sem enn voru eftir, fengu þessar borgir frá ættbálki Sebúlons: Rimmónó ásamt beitilöndum og Tabór ásamt beitilöndum.

63Frá ættbálki Rúbens fengu þeir Beser í eyðimörkinni ásamt beitilöndum, Jahsa ásamt beitilöndum,

64Kedemót ásamt beitilöndum og Mefaat ásamt beitilöndum í landinu handan við Jórdan.

65Og frá ættbálki Gaðs fengu þeir Ramót í Gíleað ásamt beitilöndum, Mahanaím ásamt beitilöndum,

66Hesbon ásamt beitilöndum og Jaser ásamt beitilöndum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help