Sálmarnir 3 - Biblían (2007)

1Sálmur Davíðs þá er hann flýði fyrir Absalon syni sínum.

2Drottinn, hversu margir eru óvinir mínir,

margir rísa gegn mér,

3margir segja um mig:

„Hann fær enga hjálp frá Guði.“ (Sela)

4En þú, Drottinn, ert skjöldur minn,

sæmd mín og lætur mig bera höfuðið hátt.

5Ég hrópa hátt til Drottins

og hann svarar af sínu heilaga fjalli. (Sela)

6Ég leggst til hvíldar og sofna,

ég vakna því að Drottinn hjálpar mér.

7Ég óttast eigi þó að óvígur her

fylki sér gegn mér á alla vegu.

8Rís upp, Drottinn, bjarga mér, Guð minn,

því að þú löðrungar fjandmenn mína,

brýtur tennur óguðlegra.

9Hjálpin kemur frá Drottni.

Blessun þín komi yfir lýð þinn. (Sela)

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help