Orðskviðirnir 16 - Biblían (2007)

1Fyrirætlanir hjartans eru á mannsins valdi

en svar tungunnar kemur frá Drottni.

2Maðurinn telur alla vegu sína vammlausa

en Drottinn reynir ásetning hans.

3Fel Drottni verk þín

og þá bera áform þín árangur.

4Allt hefur Drottinn skapað í ákveðnum tilgangi,

eins hinn rangláta vegna óheilladagsins.

5Sérhver hrokagikkur er Drottni andstyggð,

vissulega sleppur hann ekki við refsingu.

6Misgjörðir afplána menn með tryggð og vináttu,

að óttast Drottin forðar frá illu.

7Ef Drottni geðjast breytni manns

snýr hann jafnvel óvinum hans til liðs við hann.

8Betra er lítið með réttu

en mikill arður með röngu.

9Hjarta mannsins velur leið hans

en Drottinn stýrir skrefum hans.

10Goðsvar er á vörum konungsins,

í dómi skeikar honum ekki.

11Rétt vog og reisla koma frá Drottni

og lóðin á vogarskálunum eru hans verk.

12Ranglætisverk eru konungum andstyggð

því að hásætið er reist á réttlæti.

13Sannleiksorð eru yndi konunga,

hinn hreinskilni fellur þeim í geð.

14Konungsreiði er fyrirboði dauðans

en vitur maður sefar hana.

15Í brosi konungs felst líf

og hylli hans er sem regnský á vori.

16Hve miklu betra er að afla sér visku en gulls

og ágætara að afla sér skynsemi en silfurs.

17Háttur hreinskilinna er að forðast illt,

líf sitt varðveitir sá sem gætir breytni sinnar.

18Dramb er falli næst,

hroki veit á hrun.

19Betra er að vera hógvær með lítillátum

en deila feng með dramblátum.

20Vel farnast þeim sem vel rækir erindi sitt

og sæll er sá sem treystir Drottni.

21Hinn vitri leitar ráða spekinga

og vel mælt orð eykur fræðslu.

22Skynsemin er lífslind þeim sem hana á

en heimskan er refsing heimskra.

23Hjarta spekingsins ræður orðum hans

og eykur fræðsluna á vörum hans.

24Vingjarnleg orð eru hunang,

sæt fyrir góminn, lækning fyrir beinin.

25Margur vegur virðist greiðfær

en reynist þó heljarslóð.

26Hungur erfiðismannsins knýr hann til verka

því að sulturinn rekur á eftir honum.

27Varmennið bruggar vélráð,

orð hans eru sem brennandi eldur.

28Vélráður maður kveikir illdeilur

og rógberinn veldur vinaskilnaði.

29Ofbeldismaðurinn ginnir náunga sinn

og leiðir hann í ófæru.

30Hálflukt augu vitna um ill áform,

herptar varir um unnið ódæði.

31Gráar hærur eru heiðurskóróna,

á vegi réttlætis öðlast menn hana.

32Sá sem er seinn til reiði er betri en kappi

og sá sem stjórnar geði sínu er meiri en sá sem vinnur borgir.

33Í skikkjufellingu eru teningarnir hristir

en Drottinn ræður hvað upp kemur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help