Síraksbók 36 - Biblían (2007)

Bæn fyrir Ísrael

1Miskunna oss, Drottinn Guð allsherjar,

2lát allar þjóðir óttast þig.

3Reið upp hönd þína gegn framandi þjóðum

svo að þær sjái ægimátt þinn.

4Þú hefur sýnt þeim heilagleika þinn

með því sem þú gerðir við oss.

Sýn oss nú mátt þinn á þeim.

5Lát þá komast að raun um það sem vér þekkjum,

að enginn er Guð nema þú, Drottinn.

6Ger ný tákn og önnur stórmerki,

7ger hönd þína og hægri arm vegsamlegan.

8Vek reiðina og úthell heiftinni,

9afmá andstæðinginn og eyð óvininum.

10Flýt komu dagsins og minnstu þess sem þú ákvaðst,

lát kunngjöra máttarverk þín.

11Megi þeir sem flýja eyðast á heiftarbáli

og þeir farast sem þjóð þína kúguðu.

12Mola höfuð leiðtoga óvinanna,

þeirra sem segja: „Enginn má sín neins nema vér.“

13Safna þú öllum ættkvíslum Jakobs

og veit þeim aftur þann arfshlut sem þær áttu til forna.

14Miskunna, Drottinn, lýðnum sem ber nafn þitt,

Ísrael, er þú líktir við frumgetinn son.

15Sýn borg helgidóms þíns miskunn,

Jerúsalem, þar sem þú átt bústað.

16Lát Síon óma af lofgjörð um dáðir þínar

og helgidóm þinn fyllast af dýrð.

17Vitna þeim í vil sem þú skapaðir í upphafi,

uppfyll þá spádóma er fluttir voru í þínu nafni.

18Launa þeim sem bíða þín

og lát spámenn þína reynast sannorða.

Hlýð, Drottinn, á bæn þjóna þinna

19samkvæmt náð þinni við lýð þinn.

Allir á jörðu munu þá komast að raun um

að þú ert Drottinn, eilífur Guð.

Um að velja sér konu

20Alla fæðu meltir maginn

en ein fæða tekur þó annarri fram.

21Gómur er næmur á bragð bráðar

eins og hygginn maður á lygi.

22Svikult hjarta veldur harmi

en reyndur maður getur launað fyrir sig.

23Konan tekur hvaða manni sem er

en ein dóttir ber þó af annarri.

24Fegurð eiginkonu hýrgar manninn,

ekkert girnist hann fremur.

25Sé hún mild og hóglát í orðum

er maður hennar sælli hverjum dauðlegum.

26Sá sem eignast konu á eign sem tekur öðru fram,

hjálp við sitt hæfi og stoð við að styðjast.

27Þar sem ekki er girðing verður garðurinn rændur,

þar sem engin er konan eigrar maðurinn um og stynur.

28Hver treystir liprum þjófi

sem flakkar borg úr borg?

Ekki er þeim fremur treyst sem á hvergi heima

og lætur þar nótt sem nemur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help