Efesusbréfið 6 - Biblían (2007)

Foreldrar og börn

1Börn, hlýðið foreldrum ykkar vegna Drottins því að það er rétt.

2„Heiðra föður þinn og móður“ – það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti:

3„til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur á jörðinni“.

4Og feður, reitið ekki börn ykkar til reiði heldur alið þau upp með aga og fræðslu um Drottin.

Þrælar og húsbændur

5Þrælar, hlýðið jarðneskum húsbændum ykkar með lotningu og ótta af einlægni hjartans, eins og það væri Kristur.

6Ekki með augnaþjónustu eins og þeir er mönnum vilja þóknast heldur eins og þjónar Krists er gera vilja Guðs af heilum huga.

7Þjónið eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn.

8Þið vitið og sjálfir að sérhver mun fá aftur af Drottni það góða sem hann gerir, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður.

9Og þið, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þið vitið að þeir eiga í himnunum sama Drottin og hann fer ekki í manngreinarálit.

Alvæpni Guðs

10Að lokum: Styrkist í Drottni og krafti máttar hans.

11Klæðist alvæpni Guðs til þess að þið getið staðist vélabrögð djöfulsins.

12Því að baráttan sem við eigum í er ekki við menn af holdi og blóði heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum.

13Takið því alvæpni Guðs til þess að þið getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli þegar þið hafið sigrað allt.

14Standið því gyrt sannleika um lendar ykkar og klædd réttlætinu sem brynju

15og skóuð á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðin um frið.

16Takið umfram allt skjöld trúarinnar sem þið getið slökkt með öll logandi skeyti hins vonda.

17Setjið upp hjálm hjálpræðisins og grípið sverð andans, Guðs orð.

18Gerið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið þannig árvökul og stöðug í bæn fyrir öllum heilögum.

19Biðjið fyrir mér að mér verði gefin orð að mæla, þá er ég lýk upp munni mínum, til þess að ég kunngjöri með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins.

20Boðberi þess er ég í fjötrum mínum. Biðjið að ég geti flutt það með djörfung eins og mér ber að tala.

Lokaorð

21En til þess að þið fáið einnig að vita um hagi mína, hvernig mér líður, þá mun Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður í þjónustu Drottins, skýra ykkur frá öllu.

22Ég sendi hann til ykkar einkum í því skyni að þið fáið að vita hvernig mér líður og til þess að hann uppörvi ykkur.

23Friður sé með söfnuðinum og kærleikur, með trúnni frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.

24Náð sé með öllum þeim sem elska Drottin vorn Jesú Krist með ódauðlegum kærleik.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help