Sálmarnir 104 - Biblían (2007)

1Lofa þú Drottin, sála mín.

Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill.

Þú ert skrýddur dýrð og hátign,

2sveipaður ljósi sem skikkju.

Þú þenur út himininn eins og tjalddúk,

3reftir sal þinn ofar skýjum.

Þú gerir skýin að vagni þínum,

ferð um á vængjum vindsins.

4Þú gerir vindana að sendiboðum þínum,

bálandi eld að þjónum þínum.

5Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar

svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.

6Frumdjúpið huldi hana eins og klæði,

vötnin náðu yfir fjöllin,

7þau flýðu ógnun þína,

hrökkluðust undan þrumuraust þinni,

8flæddu yfir fjöll, steyptust niður í dali,

þangað sem þú hafðir ætlað þeim stað.

9Þú settir vatninu mörk sem það má ekki fljóta yfir,

aldrei framar skal það hylja jörðina.

10Þú lést lindir spretta upp í dölunum,

þær streyma milli fjallanna,

11þær svala öllum dýrum merkurinnar,

villiasnarnir slökkva þar þorsta sinn.

12Við þær búa fuglar himinsins,

kvaka milli laufgaðra greina.

13Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum

og af ávexti verka þinna mettast jörðin.

14Þú lætur gras spretta handa fénaðinum

og jurtir sem maðurinn ræktar

svo að jörðin gefi af sér brauð

15og vín sem gleður mannsins hjarta,

olíu sem lætur andlit hans ljóma

og brauð sem veitir honum þrótt.

16Tré Drottins drekka nægju sína,

sedrustré Líbanons sem hann gróðursetti.

17Þar gera fuglar sér hreiður

og storkar eiga sér bústað í krónum þeirra.

18Í gnæfandi fjöllum búa steingeitur

og klettarnir eru skjól stökkhéra.

19Þú gerðir tunglið, sem ákvarðar tíðirnar,

og sólina sem veit hvenær hún á að ganga til viðar.

20Þú sendir myrkrið, þá verður nótt

og öll skógardýrin fara á stjá.

21Ljónin öskra eftir bráð

og krefjast ætis af Guði.

22Þegar sólin rís draga þau sig í hlé

og leggjast í bæli sín.

23Þá fer maðurinn út til starfa sinna

og vinnur þar til kvöldar.

24Hversu mörg eru verk þín, Drottinn?

Þú vannst þau öll af speki.

Jörðin er full af því sem þú hefur skapað.

25Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu.

Þar er óteljandi grúi,

smá dýr og stór.

26Þar fara skipin um

og Levjatan er þú hefur skapað til þess að leika sér þar.

27Öll vona þau á þig

að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.

28Þú gefur þeim og þau tína,

þú lýkur upp hendi þinni og þau mettast gæðum.

29Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau,

þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau

og hverfa aftur til moldarinnar.

30Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til

og þú endurnýjar ásjónu jarðar.

31Dýrð Drottins vari að eilífu,

Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,

32hann sem lítur til jarðar svo að hún nötrar,

sem snertir við fjöllunum svo að úr þeim rýkur.

33Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi,

lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.

34Ó, að mál mitt mætti falla honum í geð.

Ég gleðst yfir Drottni.

35Ó, að syndarar mættu hverfa af jörðinni

og óguðlegir ekki vera til framar.

Lofa þú Drottin, sála mín.

Hallelúja.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help