Sálmarnir 138 - Biblían (2007)

1Eftir Davíð.

Ég vil þakka þér af öllu hjarta,

lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.

2Ég fell fram, sný að þínu heilaga musteri

og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti

því að þú gerðir nafn þitt og orð meira öllu öðru.

3Þegar ég hrópaði bænheyrðir þú mig,

þú veittir mér hugrekki og jókst mér kraft.

4Allir konungar jarðar skulu lofa þig, Drottinn,

er þeir heyra orðin af munni þínum.

5Þeir skulu syngja um vegu Drottins

því að mikil er dýrð Drottins.

6Drottinn er hár en lítur þó til hins lága,

þekkir hinn drambláta í fjarska.

7Gangi ég í gegnum þrengingar

lætur þú mig lífi halda,

þá réttir þú fram hönd þína gegn reiði óvina minna

og hægri hönd þín bjargar mér.

8Drottinn mun fullna verk sitt fyrir mig.

Drottinn, miskunn þín varir að eilífu.

Yfirgef eigi verk handa þinna.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help