Amos 1 - Biblían (2007)

Dómur yfir ýmsum þjóðum

1Orð Amosar, eins af fjárhirðunum í Tekóa, sem honum vitraðist um Ísrael á dögum Ússía Júdakonungs og á dögum Jeróbóams Jóassonar, Ísraelskonungs, tveimur árum fyrir jarðskjálftann.

2Hann sagði:

Drottinn þrumar frá Síon,

lætur rödd sína gjalla frá Jerúsalem

svo að hagar hjarðmannanna visna

og Karmeltindur skrælnar.

3Svo segir Drottinn:

Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Damaskus

hverf ég ekki frá þessu:

Af því að þeir moluðu Gíleað með þreskisleðum úr járni

4mun ég senda eld gegn húsi Hasaels

og hann mun gleypa hallir Benhadads.

5Ég mun brjóta slagbrand Damaskus

og tortíma þeim sem situr í hásæti í Bíkat Aven,

þeim sem ber veldissprotann í Bet Eden.

Aramear verða fluttir í útlegð til Kír, hefur Drottinn sagt.

6Svo segir Drottinn:

Vegna þriggja, já, fjögurra glæpa Gasa

hverf ég ekki frá þessu:

Af því að þeir hafa flutt heil byggðarlög í útlegð

til að selja þau í hendur Edóm

7mun ég senda eld gegn múrum Gasa

og hann mun gleypa hallir hennar.

8Ég mun tortíma þeim sem situr í hásæti í Asdód,

þeim sem ber veldissprotann í Askalon.

Því næst beini ég hendi minni gegn Ekron

svo að þeim sem eftir eru af Filisteum verði eytt,

hefur Drottinn Guð sagt.

9Svo segir Drottinn:

Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Týrusar

hverf ég ekki frá þessu:

Af því að þeir sendu heil byggðarlög í útlegð til Edóms

og virtu ekki bræðrasáttmálann

10mun ég senda eld gegn múrum Týrusar

og hann mun gleypa hallir hennar.

11Svo segir Drottinn:

Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Edóms

hverf ég ekki frá þessu:

Af því að þeir ofsóttu bræður sína með sverði

og kæfðu alla samúð með þeim,

af því að þeir rændu í óslökkvandi reiði sinni

og héldu heift sinni sífellt vakandi

12þá mun ég senda eld til Teman

og hann mun gleypa hallirnar í Bosra.

13Svo segir Drottinn:

Vegna þriggja, já, vegna fjögurra glæpa Ammóníta

hverf ég ekki frá þessu:

Af því að þeir ristu þungaðar konur í Gíleað á kvið,

þegar þeir ætluðu að stækka land sitt,

14mun ég kveikja eld í múrum Rabba

og hann mun gleypa hallirnar þar

þegar heróp kveður við orrustudaginn,

þegar fárviðri geisar óveðursdaginn.

15Konungur þeirra verður að fara í útlegð,

hann og allir hirðmenn hans, segir Drottinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help