Júdítarbók 3 - Biblían (2007)

Friðarumleitanir við Hólofernes

1Þeir sendu þess vegna sendiboða til Hólofernesar til að friðmælast við hann með þessum orðum:

2„Við, þrælar stórkonungsins Nebúkadnesars, föllum að fótum þér. Farðu með okkur svo sem þér líst.

3Öll býli okkar og hagar, hveitiakrar, hjarðir fjár og nautgripa og öll fjárbyrgin við tjaldbúðir okkar eru til þinnar ráðstöfunar. Gerðu það sem þér þóknast við það allt.

4Einnig eru borgir okkar þín eign og þeir sem í þeim búa eru þrælar þínir. Komdu og farðu með þá svo sem þér sýnist best.“

5Mennirnir komu til Hólofernesar og fluttu honum þessi boð.

6Hann hélt þá með allan her sinn ofan til strandar, kom varðmönnum fyrir í víggirtu borgunum og kvaddi þaðan valda menn í her sinn.

7Bæði borgarbúar og íbúar úr nágrenninu tóku á móti Hólofernesi með blómsveigum, dansi og bumbuslætti.

8En hann eyddi allt land þeirra og hjó niður helga lundi þeirra því að honum hafði verið skipað að afmá alla guði jarðar svo að allar þjóðir tækju að dýrka Nebúkadnesar einan og allar þjóðtungur og ættkvíslir að ákalla hann sem guð.

9Síðan hélt hann að Esdrelonsléttu í nánd við Dótan sem liggur að hinni voldugu Júdeuhásléttu.

10Hann sló upp herbúðum sínum milli Geba og Skýtópólis og hélt þar kyrru fyrir í mánuð til þess að safna vistum fyrir her sinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help