1Afglapar voru allir í eðli sínu sem þekktu ekki Guð og gátu ekki getið sér til um þann sem er, af fegurð þess sem augun litu, né fengu hugboð um meistarann af verkum hans.
2Þeir töldu eldinn, vindinn, kvikt loftið, stjarnhvelfinguna, beljandi hafið eða ljósbera himins vera guðina sem stýra heimi.
3Fyrst þeir hrifust svo af fegurð þessa að þeir álitu það guði, þá ættu þeir að skilja hve miklu fremri þessum fyrirbærum sá er sem ríkir yfir þeim. Höfundur allrar fegurðar skóp þau.
4En hafi þeir undrast mátt þeirra og kraft, hefðu þeir átt að ráða af því hve miklu máttugri sá er sem kom þessu til leiðar.
5Því af mikilfengleik og fegurð sköpunarinnar má geta sér til um höfundinn.
6Þeim er þó ekki láandi. Þótt þeir leiti Guðs og þrái að finna hann villast þeir hæglega.
7Þeir umgangast verk Guðs og rannsaka þau en útlitið glepur þeim sýn, svo fagurt er það.
8En þeir eru þó ekki sýknir saka.
9Fyrst þeim tókst að ná svo langt í þekkingu að þá gat rennt grun í eilífðina, hvers vegna fundu þeir ekki fyrr Drottin alls þessa?
Dýrkun skurðgoða10Aumkunarverðir eru þeir sem setja von sína á dauða hluti og kalla handaverk manna guði, gull og silfur sem listamenn hafa mótað, dýramyndir og verðlausan stein sem höggvinn var fyrir löngu.
11Smiður fer og viðar að sér í skógi, sagar bút og tekur með sér, skefur allan börk með leikni og smíðar haglega notadrjúgt áhald til heimilisnota.
12Spæni af smíðinni notar hann í eld til suðu og etur sig mettan,
13en einn kubbinn, undinn við og kvistóttan, sem einskis er nýtur, tekur hann og telgir til af natni þegar næði gefst. Hann mótar hann af leikni sinni í mannsmynd
14eða gerir hann líkan auvirðilegu kvikindi, smyr hann menju og málar hann rauðum lit yfir alla bletti.
15Hann býr honum verðugt skrín til að búa í, setur hann á vegg og festir með nagla.
16Nú er það tryggt að hann dettur ekki því hann veit að hann getur ekki bjargað sér sjálfur enda líkneski og hjálparþurfi.
17En þegar hann biður fyrir eignum sínum, hjónabandi og börnum blygðast hann sín ekki fyrir að ávarpa lífvana hlut. Hann biður veikt um heilbrigði,
18dautt um líf, grátbænir úrræðalaust um aðstoð og um fararheill það sem getur hvorki hrært legg né lið.
19Auk þess heitir hann á það sem hefur máttarvana hendur að duga sér við athafnir og störf og handiðn sína.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.