Jósúabók 21 - Biblían (2007)

Levítaborgirnar

1Ættarhöfðingjar Levítanna fóru til Eleasars prests, Jósúa Núnssonar og annarra höfðingja ættbálka Ísraelsmanna.

2Þeir töluðu við þá í Síló í Kanaanslandi og sögðu: „Drottinn bauð fyrir munn Móse að fá okkur borgir að búa í og haglendi þeirra handa fénaði okkar.“

3Þá létu Ísraelsmenn Levítunum borgirnar í té af erfðahlutum sínum og haglendi þeirra, eins og Drottinn hafði boðið.

4Við hlutkesti kom upp hlutur ætta Kahatíta. Hlutu Levítarnir, sem voru niðjar Arons prests, þrettán borgir frá ættbálkum Júda, Símeons og Benjamíns.

5Aðrir Kahatítar fengu með hlutkesti tíu borgir frá ættum í ættbálkum Efraíms, Dans og hálfum ættbálki Manasse.

6Niðjar Gersons hlutu þrettán borgir með hlutkesti frá ættum í ættbálkum Íssakars, Assers, Naftalí og þeim helmingi ættbálks Manasse sem bjó í Basan.

7Ættir niðja Merarí hlutu tólf borgir, hver ætt fyrir sig, frá ættbálkum Rúbens, Gaðs og Sebúlons.

8Ísraelsmenn fengu Levítunum þessar borgir ásamt haglendinu umhverfis þær, eftir hlutkesti eins og Drottinn hafði boðið af munni Móse.

9Þær borgir ættbálka Júda og Símeons sem nefndar eru hér á eftir voru fengnar þeim niðjum

10Arons sem voru af ætt Kahatíta en þeir voru niðjar Leví. Þeir fengu þessar borgir af því að hlutur þeirra kom fyrstur upp.

11Þeir fengu Kirjat Arba, sem faðir Anaks hafði átt, það er Hebron, í fjalllendi Júda ásamt haglendinu umhverfis hana.

12En Kaleb Jefúnneson fékk akurland borgarinnar til eignar og þorpin sem heyrðu henni til.

13Niðjum Arons prests fengu þeir Hebron, griðaborg fyrir þá sem höfðu orðið manni að bana, og haglendi hennar. Er það griðastaður fyrir vígseka. Enn fremur hlutu þeir Líbna og haglendi hennar,

14Jattír og haglendi hennar, Estemóa og haglendi hennar,

15Hólon og haglendi hennar, Debír og haglendi hennar,

16Aín og haglendi hennar, Jútta og haglendi hennar og Bet Semes og haglendi hennar, alls níu borgir frá þessum tveimur ættbálkum.

17Frá ættbálki Benjamíns hlutu þeir Gíbeon og haglendi hennar, Geba og haglendi hennar,

18Anatót og haglendi hennar og Almón og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

19Alls hlutu prestarnir, niðjar Arons, þrettán borgir og haglendi þeirra.

20Aðrar ættir niðja Kahats, sem töldust til Levíta, fengu með hlutkesti borgir frá ættbálki Efraíms.

21Þær fengu griðaborgir fyrir þá sem höfðu orðið manni að bana, Síkem og haglendi hennar í Efraímsfjöllum og Geser og haglendi hennar,

22Kibsaím og haglendi hennar og Bet Hóron og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

23Frá ættbálki Dans hlutu þeir Elteke og haglendi hennar, Gibbetón og haglendi hennar,

24Ajalon og haglendi hennar og Gat Rimmon og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

25Frá hálfum ættbálki Manasse hlutu þeir Taanak og haglendi hennar og Gat Rimmon og haglendi hennar, tvær borgir.

26Alls voru borgir ætta annarra Kahatsniðja tíu, ásamt haglendi þeirra.

27Niðjar Gersons, sem voru af Levítaættum, hlutu griðaborg frá hálfum ættbálki Manasse fyrir þá sem höfðu orðið manni að bana. Var það Gólan í Basan og haglendi hennar. Einnig hlutu þeir Beestera og haglendi hennar, þær tvær borgir.

28Frá ættbálki Íssakars hlutu þeir Kisjón og haglendi hennar, Daberat og haglendi hennar,

29Jarmút og haglendi hennar og En Ganním og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

30Frá ættbálki Assers hlutu þeir Míseal og haglendi hennar, Abdón og haglendi hennar,

31Helkat og haglendi hennar og Rehób og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

32Frá ættbálki Naftalí hlutu þeir griðaborg fyrir þá sem höfðu orðið manni að bana, Kedes í Galíleu og haglendi hennar, einnig Hammót Dór og haglendi hennar og Kartan og haglendi hennar, alls þrjár borgir.

33Alls voru borgir Gersoníta, hverrar ættar um sig, þrettán ásamt haglendi þeirra.

34Ættir niðja Merarí, þeirra Levíta sem ótaldir eru, fengu þessar borgir frá ættbálki Sebúlons: Jokneam og haglendi hennar, Karta og haglendi hennar,

35Dimna og haglendi hennar og Nahalal og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

36Frá ættbálki Rúbens hlutu þær Beser og haglendi hennar, Jahsa og haglendi hennar,

37Kedemót og haglendi hennar og Mefaat og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

38Frá ættbálki Gaðs hlutu þær griðaborg fyrir þá sem höfðu orðið manni að bana, Ramót í Gíleað og haglendi hennar, Mahanaím og haglendi hennar,

39Hesbon og haglendi hennar og Jaser og haglendi hennar, alls fjórar borgir.

40Alls voru þær borgir tólf sem með hlutkesti féllu þeim Levítaættum í hlut sem enn voru eftir meðal niðja Merarí, hverri ætt fyrir sig.

41Allar borgir Levíta og haglendi þeirra voru dreifðar um eignarlönd Ísraelsmanna, fjörutíu og átta talsins.

42Hverri þessara borga heyrði haglendið umhverfis. Þannig háttaði til um allar þessar borgir.

Uppfylling fyrirheitanna

43Drottinn gaf Ísrael allt það land sem hann hafði heitið að gefa feðrum þeirra. Þeir tóku það til eignar og settust þar að.

44Drottinn veitti þeim frið allt umhverfis eins og hann hafði heitið feðrum þeirra. Enginn fjandmanna þeirra gat veitt þeim viðnám því að Drottinn seldi alla óvini þeim í hendur.

45Ekkert brást af öllum þeim fyrirheitum sem Drottinn hafði veitt samfélagi Ísraelsmanna. Þau rættust öll.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help