Jobsbók 29 - Biblían (2007)

Lokaræða Jobs

1Job hélt áfram ræðu sinni og sagði:

2Ég vildi að ég væri eins og áður fyrr

þegar Guð verndaði mig,

3þegar hann lét lampa sinn lýsa yfir höfði mér

og ég gekk við ljós hans í myrkri.

4Eins og þegar ég var á besta aldri,

þegar Guð skýldi tjaldi mínu

5og Hinn almáttki var enn með mér

og börnin mín voru í kringum mig,

6þegar ég þvoði fætur mína í mjólk

og ólífuolían streymdi til mín úr klettunum.

7Þegar ég gekk um hlið mitt til borgarinnar

og settist í sæti mitt á torginu

8drógu æskumenn sig í hlé þegar þeir sáu mig

og öldungar risu á fætur og stóðu kyrrir,

9höfðingjar gættu tungu sinnar

og lögðu hönd á munn sér,

10tignarmenn lækkuðu róminn

og tunga þeirra loddi við góminn.

11Sá sem hlustaði á mig lofaði mig,

hver sem sá mig hældi mér

12því að ég bjargaði snauðum sem hrópaði á hjálp

og munaðarlausum sem enginn liðsinnti.

13Sá sem var hætt kominn blessaði mig

og ég fyllti hjarta ekkjunnar fögnuði.

14Ég klæddist réttlæti,

ráðvendni mín fór mér vel eins og kápa og vefjarhöttur.

15Ég varð blindum augu

og lömuðum fætur.

16Ég varð snauðum faðir,

kannaði deilur mér óþekktra manna,

17braut kjálka illmennis

og reif bráðina úr tönnum þess.

18Ég sagði: „Ég mun farast í hreiðri mínu

og lifa lengi eins og fuglinn Fönix.

19Rót mín nær til vatns

og limið er döggvað um nætur.

20Æran endurnýjast mér sífellt

og boginn yngist í hendi mér.“

21Menn hlustuðu á mig og biðu

og hlýddu þegjandi á ráð mitt.

22Þegar ég hafði talað tók enginn til máls,

orð mín drupu á þá,

23þeir biðu mín eins og regns,

opnuðu munninn og vonuðust eftir vorskúr.

24Brosti ég við þeim fengu þeir kjark,

ef andlit mitt ljómaði voru þeir ekki lengur niðurlútir.

25Ég ákvað þeim leið, sat í höfðingjasætinu,

dvaldist sem konungur meðal hersveitanna,

eins og sá sem huggar sorgmædda.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help