Síðara Tímóteusarbréf 4 - Biblían (2007)

Verk fagnaðarboða

1Fyrir augliti Guðs og Krists Jesú, sem dæma mun lifendur og dauða, heiti ég á þig með endurkomu hans og ríki fyrir augum:

2Prédika þú orðið, gef þig að því í tíma og ótíma. Vanda um, ávíta og uppörva með stöðugri þolinmæði og fræðslu.

3Því að þann tíma mun að bera er menn þola ekki hina heilnæmu kenningu heldur hópa að sér kennurum eftir eigin fýsnum sínum til þess að heyra það sem kitlar eyrun.

4Þeir munu snúa eyrum sínum burt frá sannleikanum og hverfa að kynjasögum.

5En ver þú algáður í öllu, þol illt, ger verk fagnaðarboða, fullna þjónustu þína.

6Nú er svo komið að mér verður fórnfært og tíminn er kominn að ég taki mig upp.

7Ég hef barist góðu baráttunni, hef fullnað skeiðið, hef varðveitt trúna.

8Og nú er mér geymdur sveigur réttlætisins sem Drottinn, hinn réttláti dómari, mun gefa mér á þeim degi. Og ekki einungis mér heldur og öllum sem þráð hafa endurkomu hans.

Drottinn stóð með mér

9Reyndu að koma sem fyrst til mín

10því að Demas hefur yfirgefið mig vegna þess að hann elskaði þennan heim. Hann er farinn til Þessaloníku. Kreskes er farinn til Galatíu og Títus til Dalmatíu.

11Lúkas er einn hjá mér.

Tak þú Markús með þér til mín. Hann er mér þarfur í þjónustunni.

12Týkíkus hef ég sent til Efesus.

13Fær þú mér, þegar þú kemur, möttulinn, sem ég skildi eftir í Tróas hjá Karpusi, og bækurnar, einkanlega skinnbækurnar.

14Alexander koparsmiður gerði mér margt illt. Drottinn mun gjalda honum eftir verkum hans.

15Gæt þín líka fyrir honum því að hann stóð mjög í gegn orðum okkar.

16Í fyrstu málsvörn minni kom enginn mér til aðstoðar heldur yfirgáfu mig allir. Verði þeim það ekki tilreiknað.

17En Drottinn stóð með mér og veitti mér kraft til þess að ég yrði til að fullna prédikunina og allar þjóðir fengju að heyra. Og ég varð frelsaður úr gini ljónsins.

18Drottinn mun frelsa mig frá öllu illu og leiða mig hólpinn inn í sitt himneska ríki. Honum sé dýrð um aldir alda. Amen.

Kveðjur

19Heilsa þú Prisku og Akvílasi og heimili Ónesífórusar.

20Erastus varð eftir í Korintu en Trófímus skildi ég eftir sjúkan í Míletus.

21Flýt þér að koma fyrir vetur. Evbúlus sendir þér kveðju og Púdes og Línus og Kládía og allir bræðurnir.

22Drottinn sé með þínum anda.

Náð sé með yður.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help