Jesaja 4 - Biblían (2007)

1Sjö konur munu þrífa í sama mann á þeim degi

og segja: „Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða,

leyf oss aðeins að bera nafn þitt,

tak smánina frá oss.“

Hin nýja Jerúsalem

2Á þeim degi verður kvistur Drottins fagur og vegsamlegur og ávöxtur landsins stolt og vegsemd þeirra í Ísrael sem af komast.

3Þeir sem af lifa á Síon og þeir, sem eftir verða í Jerúsalem, verða nefndir heilagir, allir sem skráðir eru til lífsins í Jerúsalem.

4Þegar Drottinn hefur þvegið óhreinindin af Síonardætrum og skolað burt blóðið úr Jerúsalem með dóms- og hreinsunaranda,

5þá skapar Drottinn ský um daga og rjúkandi og bjartan eldsloga um nætur yfir öllu Síonarfjalli þeim sem þar safnast saman. Því að yfir allri dýrðinni verður hlíf.

6Laufþak mun veita forsælu í hita dagsins og hæli og skjól í stormi og regni.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help