Hebreabréfið 2 - Biblían (2007)

Hjálpræði Guðs

1Þess vegna ber okkur að gefa því enn betur gaum er við höfum heyrt svo að við berumst eigi afleiðis.

2Fyrst orðið, sem englar fluttu, hefur reynst stöðugt og þau sem brutu gegn því og hlýddu ekki hlutu réttláta refsingu,

3hvernig fáum við þá komist undan ef við vanmetum slíkt hjálpræði? Drottinn flutti það fyrst og þau sem heyrðu það staðfestu það fyrir okkur.

4Guð bar jafnframt vitni með þeim með táknum og undrum og margs konar kraftaverkum og með gjöfum heilags anda sem hann deildi út eftir vilja sínum.

Bróðir manna

5Því ekki lagði hann undir engla hinn komandi heim sem við tölum um.

6Einhvers staðar er vitnað:

Hvað er maður að þú minnist hans?

Eða mannssonur að þú vitjir hans?

7Skamma stund gerðir þú hann englunum lægri.

Þú hefur krýnt hann vegsemd og heiðri.

Og þú hefur skipað hann yfir verk handa þinna.

8Allt hefur þú lagt undir fætur hans.

Þótt skrifað sé að allt sé undir hann lagt og ekkert undan skilið, þá sjáum við ekki enn að allir hlutir séu undir hann lagðir.

9En við sjáum að Jesús, sem „skamma stund var gerður englunum lægri,“ er „krýndur vegsemd og heiðri“ vegna dauðans sem hann þoldi. Fyrir Guðs náð skyldu allir hljóta blessun af dauða hans.

10Guð hefur skapað allt og allt er til vegna hans. Hann vildi leiða mörg börn til dýrðar. Því varð hann að fullkomna með þjáningum þann Jesú er skyldi leiða þau til hjálpræðis.

11Því að sá sem helgar og þau sem helguð verða eru öll frá einum komin. Þess vegna telur hann sér eigi vanvirðu að kalla þau systkin

12er hann segir:

Ég mun gera nafn mitt kunnugt systkinum mínum,

ég mun syngja þér lof mitt í söfnuðinum.

13Og aftur:

Ég mun treysta á hann.

Og enn fremur:

Hér er ég og börnin er Guð gaf mér.

14Þar sem nú börnin eru af holdi og blóði þá varð hann sjálfur maður, til þess að hann með dauða sínum gæti að engu gert þann sem hefur mátt dauðans, það er að segja djöfulinn,

15og frelsað alla þá sem lifðu allan sinn aldur undir ánauðaroki af ótta við dauðann.

16Því að víst er um það að ekki tekur hann að sér englana en hann tekur að sér niðja Abrahams.

17Því var það að hann í öllum greinum átti að verða líkur systkinum sínum svo að hann yrði miskunnsamur og trúr æðsti prestur í þjónustu fyrir Guði og gæti friðþægt fyrir syndir lýðsins.

18Sjálfur hefur hann þjáðst og hans verið freistað. Þess vegna er hann fær um að hjálpa þeim er verða fyrir freistingu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help