Sálmarnir 128 - Biblían (2007)

1Helgigönguljóð.

Sæll er hver sá er óttast Drottin

og gengur á hans vegum.

2Afla handa þinna skalt þú njóta,

sæll ert þú, vel farnast þér.

3Kona þín er sem frjósamur vínviður

inni í húsi þínu,

börn þín sem teinungar olíutrésins

umhverfis borð þitt.

4Sannarlega hlýtur slíka blessun sá maður

er óttast Drottin.

5Drottinn blessi þig frá Síon

svo að þú fáir séð hamingju Jerúsalem

alla ævidaga þína

6og séð barnabörn þín.

Friður sé yfir Ísrael.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help