1Þá mun hinn réttláti standa með mikilli einurð
frammi fyrir þeim er þjökuðu hann
og virtu erfiði hans einskis.
2Þegar þeir sjá hann verða þeir skelfingu
og furðu lostnir á óskiljanlegu hjálpræði hans.
3Iðrandi munu þeir segja við sjálfa sig
og andvarpa í sálarangist:
4„Þetta er sá sem vér heimskingjarnir hæddumst að fyrrum
og höfðum að háði og spotti.
Vér töldum líferni hans fásinnu
og endalok hans smánarleg.
5Af hverju telst hann nú til barna Guðs
og hefur öðlast hlutskipti með heilögum?
6Vér höfum þá villst af vegi sannleikans,
ljós réttlætisins hefur ekki lýst oss
og sólin hefur aldrei runnið upp yfir oss.
7Vér flæktum oss í þistlum lögleysis og glötunar
og vér eigruðum um veglaus öræfi,
en veg Drottins þekktum vér eigi.
8Hvaða gagn hefur drambið unnið oss?
Hvað hefur auður og oflæti fært oss?
9Allt er það liðið hjá eins og skuggi,
eins og fregn sem þýtur hjá
10eða skip sem klýfur bárufalda,
slóð þess finnst ekki,
ekkert kjölfar í öldunum.
11Eða eins og fugl flýgur um loftið
og enginn sér merki flugsins.
Hann brýtur sér leið með vængjaslögum sem bæra léttan blæinn.
Hann klýfur loftið með sterkum þyt blakandi vængja,
en síðan sjást engin merki þess að um loftið var farið.
12Eða þegar ör er skotið að marki,
loftið klofnar og rennur saman á ný
og enginn veit hvar örin fló.
13Þannig erum vér. Nýfæddir erum vér horfnir
og getum ekki sýnt nein merki um drýgðar dáðir
heldur tærðumst vér upp í illri breytni.“
14Von hins guðlausa er sem sáð er hrekst fyrir vindi,
eins og skúm sem stormur feykir
eða reykur sem vindur dreifir
og hverfur eins og minning um næturgest.
Umbun réttlátra, hegning guðlausra15En réttlátir lifa um aldur.
Laun þeirra eru hjá Drottni
og Hinn hæsti annast um þá.
16Þess vegna munu þeir hljóta skínandi konungskórónu
og tignarlegt höfuðdjásn úr hendi Drottins.
Hann mun skýla þeim með hægri hendi
og hlífa þeim með armi sínum.
17Hann mun búast heilagri reiði
og hervæða sköpunina til varnar gegn óvinum.
18Hann mun klæðast brynju réttlætis
og setja upp hispurslausan dóm sem hjálm
19og taka ósigrandi heilagleikann að skildi.
20Úr bráðri reiði mun hann smíða hvasst sverð
og heimurinn mun fylgja honum í herför gegn fávísum.
21Eldingar munu þjóta sem óskeikular örvar
og fljúga til marks eins og skotið af þöndum skýjaboga.
22Haglhríðin mun dynja eins og steinum væri slöngvað í bræði.
Vötn sjávarins munu æða í gegn þeim
og holskeflur steypast yfir þá án miskunnar.
23Máttugur andinn mun standa í gegn þeim
og feykja þeim burt eins og ofviðri.
Þannig mun lögleysið leggja gjörvalla jörðina í auðn
og illgjörðir steypa hásætum hinna voldugu.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.