Jeremía 7 - Biblían (2007)

Ræður frá tímum JójakímsMusterisræðan

1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni:

2Taktu þér stöðu við hliðið að húsi Drottins, flyttu þar þessa ræðu og segðu: Heyrið orð Drottins, allir Júdamenn, sem gangið inn um þetta hlið til að tilbiðja Drottin.

3Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Bætið breytni yðar og verk, þá mun ég búa á meðal yðar hér á þessum stað.

4Treystið ekki lygaræðum þegar sagt er: „Þetta er musteri Drottins, musteri Drottins, musteri Drottins.“

5Nei, ef þér gerbreytið háttum yðar og verkum, ef þér sýnið sanngirni í deilum manna á meðal,

6kúgið ekki aðkomumenn, munaðarleysingja og ekkjur, úthellið ekki saklausu blóði á þessum stað og eltið ekki aðra guði yður til tjóns,

7þá mun ég búa á meðal yðar á þessum stað, í landinu sem ég gaf feðrum yðar til eignar um aldir alda.

8En þér treystið gagnslausum lygaræðum, lognum boðskap sem er gagnslaus.

9Þegar þér hafið stolið, myrt, drýgt hór, svarið meinsæri, fórnað til Baals og elt aðra guði sem þér hafið ekki þekkt fyrr,

10getið þér þá komið og gengið fram fyrir auglit mitt í þessu húsi sem kennt er við nafn mitt og sagt: „Vér erum hólpnir,“ og haldið síðan áfram að fremja sömu svívirðu?

11Er þetta hús, sem kennt er við nafn mitt, ræningjabæli í yðar augum? Já, ég lít svo á, segir Drottinn.

12Farið til helgistaðar míns í Síló þar sem ég lét nafn mitt búa áður fyrr. Virðið fyrir yður hvernig ég hef farið með hann vegna illsku lýðs míns, Ísraels.

13En þér hafið nú unnið öll sömu verk, segir Drottinn. Þótt ég talaði til yðar seint og snemma hlustuðuð þér ekki og þótt ég hrópaði til yðar svöruðuð þér ekki.

14Þess vegna ætla ég að fara með þetta hús, sem kennt er við nafn mitt og þér treystið á, eins og ég fór með Síló. Ég ætla að fara með staðinn sem ég gaf yður og feðrum yðar eins og ég fór með Síló.

15Ég mun reka yður frá augliti mínu eins og ég rak alla bræður yðar frá mér, alla niðja Efraíms.

Hjáguðadýrkun

16Þú skalt ekki biðja fyrir þessari þjóð og hvorki hefja upp kveinstafi né grátbeiðni þeirra vegna. Þú skalt ekki leggja að mér því að ég hlusta ekki á þig.

17Sérðu ekki hvað þeir eru að gera í borgunum í Júda og á götunum í Jerúsalem?

18Börnin tína saman eldivið, feður þeirra kveikja eld og konurnar hnoða deig í fórnarkökur handa drottningu himinsins. Þeir færa öðrum guðum dreypifórnir til að skaprauna mér.

19En skaprauna þeir mér? segir Drottinn.

Skaprauna þeir ekki öllu fremur sjálfum sér og roðna af skömm?

20Því segir Drottinn: Reiði minni og heift verður úthellt yfir þennan stað, yfir menn og skepnur, yfir tré merkurinnar og ávexti akursins. Reiði mín mun brenna og ekki slokkna.

Ádeila á musterisþjónustuna

21Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels:

Hlaðið brennifórnum yðar ofan á sláturfórnirnar og etið kjötið.

22Ég talaði hvorki við forfeður yðar né gaf þeim fyrirmæli um brennifórnir og sláturfórnir þegar ég leiddi þá út úr Egyptalandi.

23En ég gaf þeim þessi fyrirmæli: Hlýðið boðum mínum, þá verð ég Guð yðar og þér verðið lýður minn. Gætið þess að fylgja nákvæmlega þeim vegi sem ég hef boðið yður svo að yður vegni vel.

24En þeir heyrðu ekki og lögðu ekki við hlustir heldur fylgdu eigin ráðum í þverúð síns illa hjarta. Þeir sneru við mér baki, ekki andlitinu.

25Frá þeim degi, þegar forfeður yðar fóru út úr Egyptalandi og fram á þennan dag, hef ég stöðugt, aftur og aftur, sent yður alla þjóna mína, spámennina.

26En þeir hlustuðu ekki og lögðu ekki við eyrun heldur gerðust harðsvíraðir og breyttu enn verr en feður þeirra.

27Þegar þú boðar þeim allt þetta munu þeir ekki hlusta. Þegar þú hrópar til þeirra munu þeir ekki svara þér.

28Þú skalt því segja við þá: Þetta er þjóðin sem hlustaði ekki á rödd Drottins, Guðs síns, og hlýddi ekki leiðsögn hans. Horfin er trúfestin, upprætt úr munni þeirra.

Viðurstyggð hjáguðadýrkunarinnar

29Skerðu af þér lokkana og fleygðu þeim, syngdu harmljóð á gróðurvana hæðum, því að Drottinn hefur hafnað og útskúfað þeirri kynslóð sem hann reiddist.

30Júdamenn hafa gert það sem illt er í augum mínum, segir Drottinn. Þeir hafa reist viðurstyggilegar guðamyndir sínar í húsinu, sem kennt er við nafn mitt, til þess að saurga það.

31Þeir hafa reist Tófetfórnarhæðir í Hinnomssonardal til þess að brenna syni sína og dætur í eldi. Það hef ég hvorki boðið né heldur komið það í hug.

32Sjá, þeir dagar munu koma, segir Drottinn, að ekki verður lengur talað um Tófet og Hinnomssonardal heldur um Drápsdal. Þá verða svo margir grafnir í Tófet að ekki verður neitt rúm eftir.

33Lík þessa fólks verða æti handa fuglum himins og dýrum merkurinnar og enginn mun fæla þau burt.

34Ég mun þagga niður fagnaðar- og gleðihróp, köll brúðguma og brúðar í borgum í Júda og á strætum í Jerúsalem, því að landið verður lagt í eyði.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help