Opinberunarbókin 15 - Biblían (2007)

Síðustu plágurnar

1Og ég sá annað tákn á himni, mikið og undursamlegt: Sjö engla sem höfðu sjö síðustu plágurnar því að með þeim lauk reiði Guðs.

2Og ég leit sem glerhaf eldi blandið. Þeir sem höfðu unnið sigur á dýrinu og líkneski þess, og létu töluna sem táknar nafn þess ekki villa um fyrir sér, stóðu við glerhafið og héldu á hörpum Guðs.

3Þeir sungu söng Móse, þjóns Guðs, og söng lambsins:

Mikil og dásamleg eru verk þín,

Drottinn Guð, þú alvaldi,

réttlátir og sannir eru vegir þínir,

þú konungur aldanna.

4Hver skyldi ekki óttast þig, Drottinn, og vegsama nafn þitt?

Því að þú einn ert heilagur,

allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér

því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.

5Og eftir þetta sá ég að upp var lokið musteri Guðs á himni, vitnisburðartjaldbúðinni.

6Englarnir sjö, sem höfðu plágurnar sjö, gengu þá út úr musterinu klæddir hreinu, skínandi líni og gyrtir gullbeltum um brjóst.

7Og englunum sjö fékk ein af verunum fjórum sjö gullskálar, fullar reiði Guðs, hans sem lifir um aldir alda.

8Og musterið fylltist af reyknum af dýrð Guðs og mætti hans og enginn mátti ganga inn í musterið uns plágurnar sjö, frá englunum sjö, væru hjá liðnar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help